Lánasjóður íslenskra námsmanna.
Hæstv. forseti. Ég fagna því ef Frjálslyndi flokkurinn hefur áhuga á því að styðja þetta góða mál og leiða það til lykta innan þingsins en átta mig ekki alveg á þeim málflutningi sem hér átti sér stað hjá hv. þingmanni því það er þannig, og OECD hefur stutt það og sannað, að framlög stjórnvalda OECD-ríkjanna hafa nær hvergi aukist eins mikið og á Íslandi. Við erum komin meðal þeirra fremstu í heiminum hvað varðar framlög til menntamála. Hér er um að ræða frumvarp sem gerir það að verkum að trúlega verður íslenska menntakerfið skilvirkara en ella í ljósi þess að það er meiri hvati fyrir fólk að ljúka námi á tilsettum tíma og tilskildum tíma. Ég vil minna hv. þingmann á að þetta er mál sem ég hef meðal annars haft mikinn áhuga á innan míns flokks. Flokkurinn hefur ályktað um það. En að sjálfsögðu komast ekki öll mál til framkvæmda í einu. Það er einfaldlega þannig.
Ég fór yfir það hvernig Framsóknarflokkurinn beitti sér fyrir því í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn að bæta kjör námsmanna stórlega með því að lækka endurgreiðslubyrði lána lánasjóðsins sem var mikið framfaraspor. Í raun er ótrúlegt hvað við höfum varið miklum fjármunum til menntakerfisins á undanförnum árum. Allar skýrslur sýna það. En það er einfaldlega fjárfesting í þeim hagvexti til framtíðar litið því við þurfum að breyta þessu þjóðfélagi á þann hátt að við þurfum að hækka þekkingarstigið hér því við erum í samkeppni við aðrar þjóðir núna í hnattvæddum heimi. Því er mikilvægt að við stöndum vel að þessum málum og ég fagna því sérstaklega að hv. þingmaður lýsir stuðningi við þetta mál.