135. löggjafarþing — 15. fundur,  31. okt. 2007.

brottfall laga um búnaðargjald.

31. mál
[14:46]
Hlusta

Bjarni Harðarson (F) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil verða við beiðni hv. þm. Péturs H. Blöndals og biðjast afsökunar, ef honum hefur þótt það særandi að ég sagði að frumvarpið væri til gamans. Þau orð féllu vegna þeirra ummæla hv. þingmanns að þetta væri ekki stefna Sjálfstæðisflokksins. Ekki var annað á honum að skilja en að þetta væri fyrst og fremst stefna þriggja hv. þingmanna. Ef frumvarpið hefur ekki fylgi meðal Sjálfstæðisflokksins, eins og hann lét í veðri vaka, — þegar hv. þm. Jón Bjarnason ræddi um að þetta væri stefna flokksins sór hv. þm. Pétur Blöndal fyrir það — velti ég því fyrir mér til hvers frumvarpið væri lagt fram. Ekki trúi ég að það fái mikið fylgi hjá stjórnarandstöðunni.

Ég taldi reyndar að hv. þingmenn Samfylkingarinnar mundu allir sem einn standa á móti slíkri aðför að stéttarfélögum í landinu en ég fór þar greinilega villur vegar. Af orðum hv. þm. Ellerts B. Schrams að dæma eru öll mín orð um gamanmál kannski fallin úr gildi. Það er ekkert gamanmál ef Samfylkingin ætlar að styðja frumvarpið og væri gaman að vita um afstöðu fleiri þingmanna þess flokks í þeim efnum.

Varðandi það hvort rök séu utan velsæmis eða ekki sé ég ekki að það sé neitt óeðlilegt að nota þau orð. Þá er auðvitað átt við það velsæmi sem ríkir þegar rök eru annars vegar, það er sem sagt velsæmi vitsmunalífsins. Ég tel það alveg utan velsæmis í þeim skilningi að telja að jarðaverð hafi hækkað vegna þess að Lánasjóður landbúnaðarins hefur verið lagður niður, eins og hægt er (Forseti hringir.) að skilja af þessu …