135. löggjafarþing — 15. fundur,  31. okt. 2007.

brottfall laga um búnaðargjald.

31. mál
[14:53]
Hlusta

Lúðvík Bergvinsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Samfylkingin styður vitaskuld baráttu bænda sem og annarra sem berjast fyrir réttindum sínum. Hins vegar hefur löngum verið ágreiningur um hvernig best er að berjast fyrir þeim réttindum og hvernig best er að berjast fyrir kjörum sínum. Ágreiningur getur verið um það hvaða leiðir eru bestar, en ég held að við hv. þingmaður séum samstiga í því að reyna að gæta hagsmuna bænda eins og mögulegt er.

Hv. þingmaður sagði að við hv. þingmenn hefðum ekki heyrt rétt það sem hann sagði, ég vil þó taka undir með honum hvað það varðar að mér er til efs að búnaðarmálagjald fari gegn ákvæðum stjórnarskrárinnar. Það er vitaskuld heimilt að setja ákvæði um gjöld í lög þó að þau séu einnig í fjárlögum þannig að það er þá tvöföld trygging fyrir því að rétt sé á málum haldið. Ég held að þannig hafi verið staðið að málum og verði áfram. Það er því dálítið langsótt að halda því fram að tvöföld trygging fari í bága við stjórnarskrána. (Forseti hringir.) Ég held að það sé röksemdafærsla sem standist ekki.