brottfall laga um búnaðargjald.
Frú forseti. Hvað er eiginlega í gangi? Ég hef tví- eða þrívegis komið upp í pontu og tekið skýrt fram að ég sé ekki stuðningsmaður þessa máls. Ég tek hins vegar undir það sem hér hefur verið sagt, að þetta sé ekki aðför að bændastéttinni. Ég tel sjálfsagt að fólk í sömu atvinnugrein eða með sömu hagsmuni myndi samtök og eftir atvikum getur það vel verið félagsleg skylda að standa saman í slíkum bandalögum.
En við erum að tala um hvort eigi að skuldbinda fólk til þess að greiða gjald. Ég vona að við getum talað um það án þess að væna hvert annað um að vera á móti samtökum verkalýðsins, launþega, á móti bændum eða á móti mannréttindum og stríða gegn skoðunum og sjónarmiðum félagshyggjuflokka í landinu. Það er út í hött að tala svona.
Ég hef skýrt tekið fram og geri enn. Ég styð samtök fólks í landinu með ráðum og dáð en mér finnast athyglisverð þau rök sem hafa hér komið fram gegn því að skylda fólk til að greiða slíkt gjald. Það gildir um bændasamtökin jafnt sem aðra. Þar hlýtur að ríkja frelsi og mannréttindi og nútímasiðferði.