brottfall laga um búnaðargjald.
Frú forseti. Ég vil bara segja enn og aftur að það er töluverður munur á því að tala um ríkisstyrki til rekstrar stéttarsambands bænda, búnaðargjaldið sem við erum að ræða hér, eða aðrar atvinnugreinar. Ríkið styrkir ekki stéttarfélög eða reksturinn á ASÍ eða með sama hætti og landbúnaðinn.
Mér finnst fólk bera saman ólíka hluti þegar það talar annars vegar um samtök bænda og hins vegar um almenna verkalýðshreyfingu í landinu. Þetta er af sitt hvorum meiði. Ég tók áðan sem dæmi varðandi greiðslumiðlun sjómanna að þar er tekið út úr atvinnugreininni í heild sinni 1% af útflutningsverðmætum og því skipt á milli aðila.
Þetta er með öðrum hætti í landbúnaðinum. Þetta er verið að styrkja beint og allir landsmenn að borga inn í Bjargráðasjóð. Þar hafa ákveðnar tölur verið nefndar, um 137 kr. á einstakling. Þetta er með allt öðrum hætti varðandi landbúnaðinn en önnur launþegasamtök í landinu. Ég hef raunverulega alltaf litið á bændur sem atvinnurekendur en ekki sem launþega.