dómstólar.
Virðulegi forseti. Mér er bæði ljúft og skylt að bregðast við þeirri fyrirspurn sem hér er borin upp. Hugsunin með því að forsætisráðherra geri þá tillögu er kannski fyrst og fremst sú sem ég rakti áðan í ræðu minni, að hér er um að ræða dómsvaldið, þ.e. einn þriggja handhafa ríkisvaldsins, og mér þykir við hæfi að forustumaður eða oddviti ríkisstjórnar hverju sinni beri upp þá tillögu í ljósi þess.
Ég skal hins vegar játa að í þeirri vinnu og þeirri hugsun sem fram fór þótti mér kannski álitaefnið ekki vera hvort það ætti að vera forsætisráðherra eða dómsmálaráðherra, það væri miklu heldur hvort það ætti að vera forsætisráðherra eða forseti þingsins sem legði fram þá tillögu sem hér um ræðir þar sem hér væri um að ræða forustumenn annars vegar í ríkisstjórn, forustumann eða forustukonu, og síðan ... (Gripið fram í: Konur eru menn.) já, já, enda er það líka bæði forustumaður og forustukona — það má nefna það hvort tveggja — eða hitt að forseti þingsins sem leiðtogi löggjafarsamkundunnar, að hann eða hún legði slíka tillögu fram. Þarna þótti mér heldur álitaefnin liggja en að hæstv. dómsmálaráðherra legði þessa tillögu fram. Það er sú grundvallarhugsun sem þarna býr að baki.