135. löggjafarþing — 16. fundur,  1. nóv. 2007.

verðsamráð á matvörumarkaði.

[10:38]
Hlusta

Birkir Jón Jónsson (F):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Atla Gíslasyni fyrir að vekja máls á þessum grafalvarlegu ásökunum, ef við getum orðað það svo, sem fram komu í fjölmiðlum í gær. Ég tek undir með hv. þingmönnum að ekki eru öll kurl komin til grafar. Ef satt reynist, að þær fréttir sem bárust í gær séu veruleiki, er um grafalvarlegt mál að ræða. Að stóru aðilarnir á matvörumarkaðnum skuli hafa með sér samráð. Ég endurtek enn og aftur: Ef satt reynist. Auðvitað vill maður ekki trúa því. En sagan hefur sýnt okkur að fákeppni er á nær öllum sviðum í íslensku atvinnulífi í dag. Það er því mikilvægt að stjórnvöld haldi úti öflugum eftirlitstækjum eins og Samkeppniseftirlitinu til að koma í veg fyrir atvik sem þessi.

Eitt er ljóst: Verð í ýmsum verslunum, og Fréttastofa útvarpsins sannreyndi það í gær, breytist mörgum sinnum á dag. Hvernig geta þá þessar sömu verslanir auglýst á heilsíðu dagblaðanna daginn fyrir opnun eitthvert eitt ákveðið verð? Það er alveg ljóst að ekki er verið að segja neytendum satt ef verðið breytist síðan tvisvar til þrisvar sinnum á dag. Það er mjög alvarlegt mál sem við þurfum að skoða ítarlega.

Við í viðskiptanefnd Alþingis munum heimsækja Samkeppniseftirlitið í fyrramálið og fara yfir þær alvarlegu ásakanir sem fram hafa komið. En ég vil segja það í þessari umræðu að traust almennings mun ekki aukast í kjölfar þessara frétta. Umræddir aðilar þurfa að gera hreint fyrir sínum dyrum. Það eru líka mjög vafasöm skilaboð, hæstv. forseti, að sömu aðilar skuli hafa úthýst verðlagseftirliti ASÍ úr verslunum sínum, eftirliti sem er ætlað að fylgjast með hvort raunveruleg samkeppni sé á þessum markaði.