verðsamráð á matvörumarkaði.
Virðulegi forseti. Ég vil eins og fleiri þakka hv. þm. Atla Gíslasyni fyrir að taka þessa umræðu upp. Það er afar mikilvægt að þessi umræða fari fram hér. En almennt um þetta vil ég segja að ef einstaklingar, hvar sem þeir eru, búa yfir upplýsingum um verðsamráð, sem er mjög alvarlegt brot, þá er mjög mikilvægt að þeir komi þeim á framfæri. Verðsamráð varðar allt að sex ára fangelsi. Þetta eru einhver alvarlegustu brot á markaði og þess vegna er mikilvægt að þeim sé komið á framfæri við þar til bær yfirvöld og Samkeppniseftirlitið í þessu tilviki.
Það er líka mikilvægt að Neytendastofa sinni eftirliti með verðmerkingum sem undir hana heyra og mikilvægt að hún hafi svigrúm og getu til að sinna því eftirliti vegna þess að því mikla frelsi sem smám saman hefur verið veitt á íslenskum markaði fylgir vissulega mikil ábyrgð. Ríkið ber líka mikla ábyrgð á því að hafa eftirlit og aðhald með þessu frelsi þannig að ekki sé misfarið með það. Það er m.a. hlutverk okkar á hinu háa Alþingi að veita fjármuni til þessara stofnana þannig að þær geti sinnt eftirliti sínu, sem er eitt af því sem við þurfum að huga mjög vandlega að og hefur verið til umræðu núna í mörg ár hvort nægt fjármagn sé veitt í þetta eftirlit. Þetta er hlutur sem við þurfum að skoða og afgreiða fyrir árslok.
Meginatriðið er, eins og hefur komið fram í umræðunni hér hjá þingmönnum, að það liggur vissulega ekkert fyrir um það hvort brot hafi verið framin eða ekki en hins vegar leikur grunur á að eitthvað misjafnt hafi átt sér stað. Það er mikilvægt að það sé rannsakað og skoðað og að þeir sem hafa það hlutverk hafi þá fjármuni sem þarf til að klára þau verkefni.