jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla.
Herra forseti. Ég hef enga trú á boðum og bönnum. Ég hef enga trú á að þvinga fólk til eins eða neins. Menn finna alltaf undankomuleiðir. Nei, ég vil fara þá leið að menn fái vottun um að þeir sinni jafnrétti og sýni nauðsynleg skjöl til þess og sýni jafnvel ráðningarsamning og annað til ákveðinna trúnaðarmanna sem báðir aðilar treysta. Ég vil að fyrirtækin fái vottun og þá kemur í ljós hvaða fyrirtæki fullnægja þeim skilyrðum að vera jafnréttissinnuð og ráða fólk eftir hæfileikum. Þá tala ég um fólk, ég er á móti því að tala um kyn því það er líka ójafnrétti milli fólks af sama kyni. Það er oft ráðinn karlmaður sem er óhæfari en annar karlmaður sem sækir um stöðu. Það er oft ráðin kona sem er óhæfari en önnur kona sem sækir um stöðu. En þau geta ekki kært, hvorki konan né karlinn út af þessum jafnréttislögum. Það er bara hægt að kæra ef um er að ræða óhæfari einstakling af hinu kyninu þannig að þetta eru ekki jafnréttislög. Þetta eru kynjajafnréttislög sem við erum að ræða hér. Og það er afleiðing sem við sjáum. Við sjáum ekki afleiðingu af hinu þegar fjöldi karlmanna eða fjöldi kvenna er ekki ráðinn vegna þess að óhæfari aðilar af sama kyni eru ráðnir.
Ég mundi vilja sjá vottun til fyrirtækja sem Jafnréttisstofa vottaði að gættu jafnræðis og jafnréttis við ráðningar, launakjör og samninga. Það væri miklu betra og þá kæmi í ljós að það eru A- og B-fyrirtæki í landinu, sum fyrirtæki, B-fyrirtæki, eru afskaplega ósanngjörn og þá ræður maður sig ekki í vinnu hjá þeim.