135. löggjafarþing — 16. fundur,  1. nóv. 2007.

jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla.

142. mál
[11:59]
Hlusta

Birkir Jón Jónsson (F):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að fagna því að komið er fram frumvarp til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og að við skulum heyja þessa mikilvægu umræðu hér á þessum vettvangi í dag. Þetta verkefni á sviði stjórnmálanna hefur verið mjög ofarlega í forgangsröðun, m.a. síðustu ríkisstjórnar, enda veitir ekki af því að ójafnrétti á milli kynjanna hefur verið allt of mikið, því miður.

Ég vil í upphafi máls míns nefna það stórkostlega framfaraskref sem var stigið af hálfu síðustu ríkisstjórnar sem voru ný lög um fæðingar- og foreldraorlof sem veittu feðrum jafnan rétt á við konur að umgangast börnin sín á fyrstu árum ævinnar en jafnframt líka barninu þann sjálfsagða rétt að kynnast báðum foreldrum. Þetta er sú löggjöf sem hefur verið hvað róttækust á sviði jafnréttismála á síðustu áratugum og mér er það í fersku minni þegar ég gegndi starfi aðstoðarmanns félagsmálaráðherra að erlendur aðili kom til mín og sagði: „Í mínu landi getum við einungis látið okkur dreyma um svona löggjöf, hún er ekki framkvæmanleg hjá okkur. Við höfum einfaldlega ekki efni á svona flottri löggjöf sem þjóð.“ Við höfum verið að leyfa okkur mjög góða hluti í þessu. Við höfum jafnað aðstöðumun karla og kvenna þegar kemur að samvistum við barn hvað þetta varðar.

En þá kem ég að efnisatriðum þessa mikilvæga frumvarps sem unnið var að miklu leyti í tíð Framsóknarflokksins þegar sá flokkur hélt um stjórnartaumana í félagsmálaráðuneytinu.

Í júní árið 2006 skipaði þáverandi félagsmálaráðherra, Árni Magnússon, nefnd til að endurskoða efni þeirra laga sem við ræðum hér og ég vil vekja athygli á verklaginu við það. Við upphaf þess starfs var ákveðið að nefndin starfaði sem mest fyrir opnum tjöldum og sett var upp heimasíða þar sem unnt var að senda erindi til nefndarinnar og birta fundargerðir hennar. Trúi ég að nefndin hafi í starfi sínu fengið fjölmargar athugasemdir og viðbrögð úr samfélaginu.

Þegar nefndin lauk störfum í byrjun mars árið 2007 ákvað þáverandi félagsmálaráðherra að frumvarpsdrögin yrðu sett í opið umsagnarferli á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins. Þetta er náttúrlega verklag sem er til mikillar fyrirmyndar og kallast samráðsstjórnmál sem ákveðinn flokkur hefur haft mikið í flimtingum að undanförnu en því miður er annað í orði en á borði í þessum efnum og ég held að Samfylkingin gæti lært mjög mikið af því hvernig að þessu máli var unnið.

Ég fagna því að hæstv. ráðherra skuli koma með þetta mál inn í þingið. Það er mjög margt gott í þessu frumvarpi en ég vil, líkt og hv. þm. Atli Gíslason, fá upplýsingar um það, og það hefði verið gott að fá það í framsögu hæstv. ráðherra upp á þá umræðu sem hér á eftir að fara fram, hvaða breytingar áttu sér stað á milli þess að nefndin skilaði af sér og frumvarpið sem við ræðum var lagt fram. Það er mikilvægt að fá það upp á borðið.

Hæstv. forseti. Sú staða sem nú er uppi í jafnréttismálum þjóðarinnar er óviðunandi og að stórum hluta til þurfum við að halda uppi mjög öflugri og opinni umræðu um jafnréttismál. Hæstv. ráðherra vitnaði áðan til nýlegrar könnunar sem gerð var í einum framhaldsskóla landsins þar sem í ljós kom að í átta tilfellum af hverjum tíu gera drengir meiri launakröfur en stúlkur og við erum komin inn á 21. öldina. Þetta hlýtur að segja okkur að inni á heimilunum þarf að fara fram meiri umræða um jafnréttismál og innan skólakerfisins þarf sú umræða líka að eiga sér stað. Það er náttúrlega eitthvað að umræðunni og kúltúrnum í samfélaginu ef þetta er staðreynd mála að í átta af hverjum tíu tilvikum geri drengir geri ráð fyrir að fá hærri laun en konur.

Þetta kemur kannski til af einu stærsta samfélagsmeininu sem við búum við í dag sem er launamunur kynjanna. Það er kannski ekkert óeðlilegt í ljósi þessara upplýsinga ef viðhorf unglinga í dag eru þannig að drengir eigi almennt að hafa hærri laun eða að drengir almennt geri meiri kröfur um hærri laun en stúlkur, að við þurfum að horfast í augu við að launamunur sé 15–18% á milli kynjanna sem er óásættanlegt. Ég ætla að ræða sérstaklega um það atriði og gera það að nær eina umfjöllunarefni mínu í stuttri ræðu því að ég held að launamunurinn sé það mein sem við þurfum að ráðast gegn.

Ég verð að viðurkenna að ég deili að mörgu leyti hugmyndum hv. þm. Péturs H. Blöndal um nálgunina á þetta viðfangsefni. Hæstv. ráðherra benti á það áðan að í 50 ára sögu núverandi laga hefur ekkert verið farið eftir þessum lögum. Og nú á að herða enn frekar á refsivendinum. Sjáum við fram á að það verði eitthvað frekar farið eftir þessum lögum? Hæstv. ráðherra nefndi að búið væri að reyna allar leiðir í þessum efnum. Ég er ekki sammála hæstv. ráðherra í því. Ég held að við verðum að nálgast þetta úrlausnarefni öðruvísi en við höfum gert á undanförnum árum. Ég tel að lagasetning gagnvart þessu tiltekna atriði — ég vek athygli á því að ég styð að öðru leyti frumvarpið í meginatriðum — ég held að refsigleði gagnvart launaleyndinni geti vissulega verið réttlætanleg en það er spurning hvort hún skilar okkur að sama marki og ef við reyndum að nálgast þetta atriði á annan hátt.

Ég tel að stuðla þurfi að því, og hið opinbera eigi að gera það, að umbuna þeim aðilum sem standa sig í stykkinu hvað þessi mál áhrærir. Vísa ég þá til umræðu um svokallaða vottun til fyrirtækja sem sannanlega standa sig í jafnréttismálum. Hæstv. þáverandi ráðherra, Árni Magnússon, kom fram með þá hugmynd. Hugmyndin vakti mikla athygli og ég tel að við eigum að útfæra hana. Ég vil útfæra hana á þann hátt að fyrirtækin njóti þess og það séu ríkir hagsmunir fyrir fyrirtæki að jafna launamun kynjanna innan viðkomandi fyrirtækja. Ég vil sjá það í formi skattafslátts, að stjórnvöld veiti þeim fyrirtækjum sem sannanlega hafa staðið sig í jafnréttismálum, sem sýna fram á að jafnrétti ríki í launamálum innan viðkomandi fyrirtækja, 0,5–1% skattafslátt, þannig að hvati sé kominn fyrir fyrirtæki á einkamarkaði til að standa sig í þessum efnum og jafnframt að fyrirtæki sem sýna framfarir í þessum efnum fái umbun í formi skatta.

Það er engin undantekning í þessum efnum ef við horfum til skattkerfisins eins og það er í dag. Fyrirtæki sem verja fjármunum til líknarmála eða jafnvel til stjórnmálaflokka fá ákveðna skattaumbun í dag. Við erum að ræða háalvarlegt mál sem við erum öll sammála um að þurfi að leiðrétta, sem er launamunur kynjanna, en við horfum ekki til þessara leiða. Hæstv. ráðherra segir að það sé búið að reyna allt í þessum efnum. Ég tel að við náum engum raunverulegum árangri í því að uppræta launamun kynjanna nema með því að breyta aðferðafræðinni og horfa á málið með öðrum hætti en við höfum gert á síðustu 50 árum.

Ég býst við að fyrirtæki á markaði mundu nálgast þetta mál þannig að konur innan viðkomandi fyrirtækja yrðu hífðar upp, ekki yrðu karlarnir hífðir niður í launum, sem mundi þýða hærri laun fyrir konur í samfélaginu og minni launamun kynjanna. Þetta mundi aftur á móti skila sér í ríkissjóð og til sveitarfélaga í því formi að konur hefðu hærri laun og borguðu þar af leiðandi hærri skatta.

Mér finnst þessi nálgun þáverandi hæstv. ráðherra, Árna Magnússonar, og vottunarhugmynd sem ég er að ræða um að við eigum að útfæra enn lengra, kjörið tækifæri til að ráðast raunverulega að launamun kynjanna, því eins og hæstv. ráðherra benti á áðan hefur núverandi löggjöf skilað svo takmörkuðum árangri þegar kemur að þessum launamun.

Ég tel að hér sé um mikilvægt mál að ræða og ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort hún telji að til greina komi að fara þá leið að atvinnulífið sjálft hafi hagsmuni af því að útrýma því böli sem launamunur kynjanna er, eitt mesta böl sem við horfumst í augu við í íslensku þjóðfélagi í dag. Þannig gætum við Íslendingar haldið áfram að ryðja brautina á sviði jafnréttismála rétt eins og við gerðum í upphafi þessarar aldar með mjög framsækinni löggjöf um fæðingar- og foreldraorlof.

Ég held að sú nálgun sem menn hafa í þessu frumvarpi á launamun kynjanna muni því miður ekki skila tilætluðum árangri. Mér fannst það leitt í umræðunni áðan að hv. þm. Pétur Blöndal var hálfpartinn snupraður þegar hann ýjaði að því að rétt væri að horfa í aðrar áttir og nálgast kannski málið öðruvísi en við höfum gert á síðustu áratugum. Ég bendi á að fáir þingmenn hafa talað eins mikið um jafnréttismál og hv. þingmaður á undanförnum árum. Við eigum að taka nýjum hugmyndum fagnandi og því spyr ég hæstv. ráðherra hvort hún telji koma til greina að fara þessa leið sem er vissulega ný leið í þessum efnum, en ég er sannfærður um að um leið og fyrirtækin finna það á eigin skinni að það borgi sig að hafa fullt jafnrétti í launamálum innan sinna vébanda þá minnkar þessi kynbundni launamunur. Ég er þess fullviss.

Hæstv. forseti. Ég ætla að öðru leyti ekki að fjalla um einstakar efnisgreinar frumvarpsins sem ég styð í meginatriðum. Ég held að það sé hlutverk okkar og mikilvægast af öllu að ráðast að þessum kynbundna launamun. Það er ekki réttlætanlegt að karlar hafi 15–18% hærri laun en konur í dag, á 21. öldinni. Samt eru konur, ef eitthvað er, að verða ívið menntaðri en karlmenn en við sjáum því miður engar marktækar breytingar í rétta átt á þessu sviði. Við þurfum að hugsa þessa hluti upp á nýtt. Því endurtek ég þá fyrirspurn sem ég beindi áðan til hæstv. ráðherra: Er hún reiðubúin að skoða útfærslu sem þessa sem ég hef fulla sannfæringu fyrir að mundi minnka kynbundinn launamun hér á landi, kynbundinn launamun sem er okkar mesta böl í dag?