135. löggjafarþing — 16. fundur,  1. nóv. 2007.

notkun raflagna og raffanga á Keflavíkurflugvelli.

65. mál
[16:29]
Hlusta

Grétar Mar Jónsson (Fl) (andsvar):

Herra forseti. Ég hafði aldrei neinar áhyggjur. Þeir bjuggu þarna í mörg ár, hermennirnir, og ég hélt að þótt Íslendingar flyttu í þetta húsnæði mundi það ekki breyta stóru hvað varðar lífshætti eða annað. Ég gerði lítið með það.

En bráðabirgðalög í þessu tilfelli eru gjörningur sem er alls ekki hægt að sætta sig við. Það er ömurlegt hlutskipti hjá Samfylkingunni og þeirra manni, þ.e. hæstv. viðskiptaráðherra, að þurfa að taka það að sér að flytja og skrifa undir þessi bráðabirgðalög. Þetta er þveröfugt við það sem samfylkingarfólk hefur talað fyrir síðustu 10 árin, frá því Samfylkingin var stofnuð, og það er bara sorglegt að horfa upp á þau í því hlutskipti núna að verja jafnvel brot á stjórnarskránni og svona gjörninga.

Svo er hægt að minnast á það í leiðinni til hvaða tíma þessi bráðabirgðalög eiga að gilda. Þetta er ótrúlegur viðsnúningur hjá einum stjórnmálaflokki. Varaformaður Samfylkingarinnar er auðvitað algjörlega rökþrota í þessu máli.