notkun raflagna og raffanga á Keflavíkurflugvelli.
Herra forseti. Ég átta mig ekki alveg á spurningum hv. þingmanns, en ég get ekki annað en þakkað stuðninginn og þakkað það að hann skuli vera sammála mér. Það er þó einn djarfur hv. þingmaður í salnum sem nú hefur lýst því yfir að hann standi í lappirnar í þessu máli.
Þegar talað er um annan áfanga verksins, eða hvernig sem það er, fær það mál bara þinglega meðferð þegar þar að kemur. Það er ekkert vandamál. Ég get staðið þá upp og flutt um það ræður og tekið þátt í þeirri vinnu í viðskiptanefnd og hvar sem er á vettvangi þingsins. En ég vinn ekki sem þingmaður uppi í viðskiptaráðuneyti. Ég læt ekki stjórna mér þaðan. Það verður samt að virða það, hv. þm. Grétar Mar Jónsson, Samfylkingunni til betri vegar að hún komst ekki til stjórnar fyrr en á vormánuðum þannig að hún tók við þessum kaleik. Hún hefur ekki losnað við hann, en hefur eiginlega bætt um betur og gert sleifarlagið verra.