notkun raflagna og raffanga á Keflavíkurflugvelli.
Herra forseti. Það má taka undir með þeim sem hafa talað í þessari umræðu, það var ákaflega óheppilegt að til þess skyldi koma að sett voru bráðabirgðalög um það atriði sem hér ræðir um. Það var gert. Vegna ummæla hv. þm. Atla Gíslasonar um að hér sé um að ræða stjórnarskrárbrot og með vísan til hinna merku fræðimanna Ólafs Jóhannessonar og Bjarna Benediktssonar skal undir það tekið að þar er um að ræða eina merkustu fræðimenn á sviði stjórnskipunar og stjórnlagaréttar sem við höfum átt. Hins vegar skorti á það í ræðu hv. þingmanns að finna þeim orðum sínum stað með tilliti til þess og með tilvitnunum í þessa ágætu fræðimenn. Með hvaða hætti og hvernig verður það rökstutt og rökfært að þau bráðabirgðalög sem þarna voru sett hafi verið brot á þeim ákvæðum sem gilda um 28. gr. stjórnarskrárinnar?
Fræðimenn í lögfræði geta sett fram skoðanir og sjónarmið en síðan eru það dómstólar sem kveða upp dóma sína og það eru þeirra úrlausnir og fordæmi sem hafa hið afgerandi gildi. Miðað við þá dóma sem hafa gengið og það lagaumhverfi sem við þekkjum verður með engu móti fallist á það að þarna hafi verið farið yfir leyfileg mörk og stjórnarskrárbrot framin.
Hins vegar ber að fallast á það að þarna hafi verið farið mjög langt varðandi setningu bráðabirgðalaga, en ég get ekki séð að það hafi verið farið út fyrir þau mörk sem stjórnarskráin þó heimilar. Í því sambandi kann að vera spurning hvort það sé full ástæða til að þrengja ákvæði stjórnarskrárinnar varðandi heimild og möguleika til útgáfu bráðabirgðalaga. En það er allt annað mál. Við erum að vinna út frá þeim lögum sem við búum við í dag.
Það sem kom fram hjá hv. 2. þm. Suðurk. Björgvini G. Sigurðssyni þegar hann mælti fyrir nefndaráliti fyrir þessu máli afsakaði hann í raun tilurð þessara bráðabirgðalaga. Hann gerði grein fyrir því að þarna hefði verið um ámælisverðan hlut að ræða hjá þeim aðilum sem stóðu að framkvæmdum. Hann átaldi það að þetta skyldi hafa farið svona en gerði grein fyrir því að málið hefði verið þannig úr garði gert að ekki hefði verið hægt að leggja það fyrir sumarþing.
Það sem mér fannst mikilvægast — og þess vegna stóð ég að nefndaráliti meiri hlutans, þ.e. varðandi hin efnislegu rök þó að ég muni sitja hjá við atkvæðagreiðslu — voru þau atriði sem komust inn í meirihlutaálitið þar sem segir:
„Meiri hlutinn telur gagnrýnivert að mál þetta hafi ekki komið fyrr inn til viðskiptaráðuneytisins. Eðlilegra hefði verið ef málið hefði verið lagt fram á síðastliðnu sumarþingi og hlotið þar hefðbundna þinglega meðferð. Meiri hlutinn áréttar mikilvægi þess að gætilega sé farið með heimild 28. gr. stjórnarskrárinnar til setningar bráðabirgðalaga.“
Það er þessi skilningur og þessi sjónarmið sem mér virðist almennt ríkja hjá þingmönnum í dag. Í sjálfu sér er mjög gott að fá minnihlutaálit hv. þm. Atla Gíslasonar þar sem hann gengur töluvert lengra og telur raunar að um stjórnarskrárbrot sé að ræða þó að ég sé ekki sammála hans lögfræðilega mati hvað það varðar.
En þetta hefur ekkert að gera með það að standa í lappirnar eða vera á hnjánum eða sitja. Þetta er spurningin um það hvernig menn meta aðstæður heildstætt. Það kann að vera varhugavert að hrópa í málum, sem eru kannski ekki úrslitaatriði og ráða ekki mestu um velferð þjóðarinnar, eins og hv. þingmaður gerði í ræðu sinni áðan. Ég geri ráð fyrir því að við öll sem sitjum á Alþingi Íslendinga gerum okkur grein fyrir okkar þungu og miklu ábyrgð þegar kemur að spurningunni um að virða stjórnarskrána og það drengskaparheit sem við höfum unnið, að sjálfsögðu. Það er ekki þar með sagt að við getum ekki haft mismunandi sjónarmið og skoðanir á því með hvaða hætti og hvernig beri að túlka hlutina.
Þetta var óheppilegt, það liggur alveg ljóst fyrir, en ég er ekki sammála því mati að þarna hafi verið farið út fyrir þau mörk sem 28. gr. stjórnarskrárinnar kveður á um. Þá einmitt er spurningin: Með hvaða hætti og hvernig vilja menn þá koma í veg fyrir að svona hlutir geti gerst aftur?
Bráðabirgðalagasetning var hér alsiða en það er þó nokkuð langt um liðið síðan sá ósiður var aflagður. Það er samt sem áður dálítið merkilegt og til íhugunar fyrir alþingismenn að Alþingi Íslendinga starfar undir merki dansks arfakonungs sem var þekktastur fyrir það að misvirða þingræðið og koma að stjórnmálamönnum sem nýttu sér bráðabirgðalög aftur á bak og áfram til að koma í veg fyrir lýðræðislega meðferð. Það væri kannski spurning, þótt þetta sé útúrdúr, hvort ekki væri full ástæða fyrir þingmenn til að sameinast um að koma þessum óþverra af þinghúsinu og setja upp skjaldarmerkið í staðinn til þess að undirstrika og ítreka að við erum lýðræðisleg samkoma og viljum ekki að staðið sé að stjórn landsins með þeim hætti sem þessi danski arfakonungur gerði.
Ég átta mig á því að þarna var nýr viðskiptaráðherra kominn í ákveðinn vanda og með vísan til þess að hann var nýr í starfi, hafði kannski ekki haft tök á því að kanna þessi mál eins og maður sem hefði staðið lengi að þessu máli, finnst mér hægt að virða honum það til ákveðinnar vorkunnar. Það má taka undir þau orð sem hv. 2. þm. Suðurk. Björgvin G. Sigurðsson viðhafði í framsöguræðu sinni hér þar sem hann átaldi sjálfan sig og þá sem að framkvæmdunum stóðu fyrir það að hann hefði hreinlega neyðst til að setja þessi lög sem hann taldi að þó væru langt til fanga seilst. Skal tekið undir það með hinum ágæta hv. 2. þm. Suðurk. (Gripið fram í: Er það ekki ráðherrann sem þú ert að tala um?) Ég er að tala um hv. þingmanninn. Þá losna ég við að nota annað ávarp. Kannski er full ástæða til að benda hv. þingmönnum á að þegar ráðherra gengur inn fyrir dyr Alþingis er hann þingmaður.
Af framangreindum ástæðum sem ég hef ítrekað tel ég og ítreka að það var óheppilega að verki staðið. Ég mun sitja hjá við atkvæðagreiðsluna en fellst á efnisrök þau sem koma fram í meirihlutaáliti.