135. löggjafarþing — 16. fundur,  1. nóv. 2007.

notkun raflagna og raffanga á Keflavíkurflugvelli.

65. mál
[16:46]
Hlusta

Jón Magnússon (Fl) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég velti því fyrir mér þegar ég fór að minnast á arfakonunginn hvort ég ætti að blanda því inn í þessa umræðu sem í sjálfu sér varð mjög nytsamlegt og gott að gera það. Það hefur orðið til þess að hv. þm. Pétur Blöndal og Atli Gíslason hafa fundið sameiginlegan snertiflöt og óska ég þeim til hamingju með það.