135. löggjafarþing — 16. fundur,  1. nóv. 2007.

aðgerðaáætlun um íslenskukennslu fyrir innflytjendur.

28. mál
[18:58]
Hlusta

Flm. (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu og fagna því að hér ríkir jákvæðni í garð þessarar tillögu.

Mig langar að nefna örfá atriði. Í fyrsta lagi að hvað varðar hinn almenna markað má í rauninni segja að hann hafi brugðist við á undan opinberum aðilum hér á landi að því leyti að fræðslusjóðir Samtaka atvinnulífsins og verkalýðshreyfingarinnar hafa staðið sína vakt mjög vel og veitt, eins og ég sagði áðan, u.þ.b. 46% styrkja sinna til íslenskukennslu. Ég tek undir með hv. þm. Róberti Marshall að það skiptir einmitt máli fyrir fólk að geta fengið slíka kennslu á vinnutíma því að mjög margir þeirra sem hingað koma til starfa vinna langan vinnudag og er vart hægt að ætlast til að þeir sæki íslenskunám utan vinnutíma og sinni auk þess öllu öðru sem sinna þarf í daglega lífinu. Hér skiptir máli að stjórnvöld komi myndarlega til móts við þá sem eru þegar farnir af stað í þessum efnum og það má segja að stjórnvöld hafi þegar farið af stað með framlaginu í ár en framtíðarsýnin skiptir máli.

Mig langar líka að nefna, af því að rætt var um Norðurlöndin, að Finnar og Svíar hafa farið þá leið að bjóða frá tvö þúsund og upp í þrjú þúsund kennslustundir í finnsku og sænsku gjaldfrjálst fyrir þá innflytjendur sem þangað koma. Það er náttúrlega mikill munur á ástandinu þar og hér á landi en ég held að við þurfum að líta til þess hvað við getum lært af Norðurlandaþjóðunum í þessum efnum því að þær þjóðir hafa á undanförnum áratug lagt mjög mikið upp úr því bæði að auka móðurmálskennslu og að efla þá kennslu fyrir innflytjendur af því að þær hafa séð hvert stefndi.

Ég ætla ekkert að orðlengja þetta, ég fagna þeim viðbrögðum sem þessi þingsályktunartillaga fær og vonast til að hún fái jákvæða umfjöllun í menntamálanefnd og í síðari umræðu. Ég lít í raun svo á að okkur beri skylda til að varðveita og efla tungu okkar því að hún er svo stór þáttur í menningu okkar og það er ekki bara skylda gagnvart okkur sjálfum heldur gagnvart heiminum öllum að standa vörð um þennan menningararf og sjá til þess að hann lifi áfram og verði ekki safngripur í lokuðum glerskáp í framtíðinni. Þessi skylda sem á okkur hvílir er því ekki bara gagnvart okkur sjálfum heldur líka gagnvart heiminum öllum.