hækkun stýrivaxta.
Frú forseti. Í sjálfu sér þarf þessi vaxtahækkun Seðlabankans ekki endilega að koma á óvart í þeirri stöðu sem hann stendur frammi fyrir. Þessar gríðarlegu vaxtahækkanir og hátt vaxtastig hér á landi er farið að há verulega öllu atvinnulífi, þetta ógnar fjárhagsstöðu heimila, fólk sem keypti íbúðir og sér vaxtastig nú vera með því hæsta sem gerist í heiminum þrátt fyrir loforð og yfirlýsingar um annað þegar lánin voru tekin. Ábyrgð stjórnvalda hér er mikil og hvernig þau í rauninni svíkja íbúðakaupendur með allt öðru efnahagsástandi en var lofað þegar ráðist var í þau kaup.
Ég hef áður gagnrýnt hér hversu veruleikafirrtur fjármálaráðherra virðist vera í efnahagsmálum þegar horft er til forsendna í þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins. Þar stendur að gert sé ráð fyrir að hagvöxtur á árinu 2007 verði 0,7%. Hann er líklega þrisvar eða fjórum sinnum hærri en það. Hvar á nú að láta þensluna bitna? Á að láta hana bitna á landsbyggðinni, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra? Hátt gengi og hátt vaxtastig er að sliga þessar byggðir og atvinnulíf á þessum stöðum.
Á að láta þetta bitna á kjarasamningum og bættum kjörum hjá fólki í umönnunarstéttum? Er það þetta fólk sem er að hleypa upp þenslunni? Nei. En við munum heyra það frá þessari ríkisstjórn að þar eigi að berja niður ef það verður gert. (Forseti hringir.) Þessi ríkisstjórn hefur svikist um að standa við fyrirheit sín (Forseti hringir.) í efnahagsmálum, frú forseti.