umferð um Reykjavíkurflugvöll.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. samgönguráðherra fyrir greinargóð svör og fagna því að heyra úr þessum ræðustól að þótt við hæstv. samgönguráðherra séum ekki alltaf sammála um flugvöllinn í Reykjavík erum við þó sammála um það — ég held að ég hafi skilið hæstv. ráðherra rétt varðandi það — að þetta flug eigi ekki heima á Reykjavíkurflugvelli, heldur sé það framtíðarsýn okkar beggja að það verði í meira mæli á Keflavíkurflugvelli. Ég er í þessu tilfelli ekki sérstaklega að hugsa um tekjuspursmálið eins og hæstv. ráðherra kom inn á, heldur fyrst og fremst mengunarþættina af þessu flugi, ekki síst hávaðamengunina sem hefur gríðarleg áhrif á íbúa þarna í næsta nágrenni. Því fagna ég sérstaklega svari hæstv. ráðherra um að við erum þó sammála um að í framtíðinni verði þetta flug í Keflavík en ekki Reykjavík.