135. löggjafarþing — 18. fundur,  5. nóv. 2007.

umferð um Reykjavíkurflugvöll.

[15:42]
Hlusta

samgönguráðherra (Kristján L. Möller) (Sf):

Herra forseti. Ég er ekki alveg viss um að við séum svo algjörlega sammála um þetta en við skulum sjá til. Aðalatriðið er að málefni Reykjavíkurflugvallar eru í vinnslu og ég get t.d. sagt frá því sem ég kom ekki að í fyrra svari mínu að ég átti 1. nóvember sl. ágætisfund með fulltrúum frá Betri byggð sem er mjög umhugað um að Reykjavíkurflugvöllur fari úr Vatnsmýrinni. Það var fínn fundur þar sem skipst var á skoðunum og farið yfir þessi mál. Þau minntu m.a. á að nefnd Helga Hallgrímssonar, fyrrverandi vegamálastjóra, lagði til veðurfarsrannsóknir uppi á Hólmsheiði. Þær eru byrjaðar en þau voru með upplýsingar um að þær væru kannski ekki nægjanlegar og það hefur verið kannað innan ráðuneytisins og er verið að ræða það við Flugstoðir þannig að þær veðurfarsrannsóknir sem voru boðaðar í skýrslunni sem nauðsynlegar eru nú á næstu árum eru sem sagt hafnar. Ef það er eitthvað sem vantar upp á, eins og fulltrúar frá Betri byggð sögðu, verður bætt úr því og flugtæknilegu rannsóknirnir munu hefjast líka.

Ég vona að þetta svari fyrirspurn hv. þingmanns.