umferð um Reykjavíkurflugvöll.
Herra forseti. Ég hygg samt, hæstv. samgönguráðherra, að þegar prófarkalesarar lesa ræður okkar í þessari umræðu komist þeir að því að við erum býsna sammála varðandi þetta mál (Gripið fram í: Þið eruð í sama flokki.) enda erum við í sama flokki, það er rétt hjá hv. þingmanni.
Mér finnst aðalatriði þessarar umræðu vera það — ég hvet hæstv. ráðherra til þess og sú var ástæða þess að ég tók þetta mál upp undir þessum lið — að mér finnst að við eigum að sammælast um að marka þá stefnu til framtíðar að aukningin í þessu flugi og lendingum einkaþotna verði ekki öll á Reykjavíkurflugvelli og að sú stefna verði mörkuð í framtíðinni að Keflavíkurflugvöllur verði sá lendingarstaður sem einkaþotum er frekar beint á en Reykjavíkurflugvöllur.