135. löggjafarþing — 18. fundur,  5. nóv. 2007.

staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.

131. mál
[17:09]
Hlusta

Árni Páll Árnason (Sf):

Virðulegi forseti. Það frumvarp sem hér er til umræðu er bein afleiðing af Kárahnjúkaverkefninu og framkvæmd þess. Ég held að ljóst sé að við eigum eftir að sjá meira um það hvernig að þeirri framkvæmd var staðið. Ég óttast að við eigum eftir að sjá fleiri litla bandorma koma hér inn vegna þess að ekki var að fullu hugsað út í þá vegferð áður en í hana var lagt.

Það er ljóst af niðurstöðu Hæstaréttar að allar líkur eru á því að það skattfé sem Impregilo var krafið um, en mun ekki standa skil á í kjölfar dóms Hæstaréttar, sé glatað. Þar með bætist þá væntanlega í herkostnað ríkissjóðs af þessu verkefni sem því nemur.

Það er alveg ljóst, og var ljóst strax í kjölfar þess að tilboð voru opnuð í Kárahnjúkavirkjun, að tilboð Impregilo byggðist á þeirri forsendu að það fyrirtæki ætlaði ekki að virða hefðbundnar samskiptareglur á íslenskum vinnumarkaði. Ekki þurfti að bíða lengi áður en það varð ljóst af allri framgöngu fyrirtækisins. Það er alveg ljóst að íslenskt samfélag var alls ekki í stakk búið fyrir framkvæmd af þessum toga og á þessum stað þegar ásetningur fyrirtækisins var sá sem hann greinilega var. Hér var um að ræða vinnustað fjarri þéttbýli og fámennar eftirlitsstofnanir sem voru illa í sveit settar til þess að tryggja fullnægjandi eftirlit með að eftir lögum og reglum væri farið.

Þetta skapaði vandamál fyrir starf heilbrigðisfulltrúa og fyrir framkvæmd vinnueftirlits. Það er alveg ljóst að samfélagið á staðnum var ekki búið undir að taka við svo stóru verkefni og hafa mjög grimmt og hart eftirlit með vinnulagi af hálfu verktakans á svæðinu.

Það sem er átakanlegast í þessu máli, og kannski þyngra en tárum taki, er að það skuli vera opinbert fyrirtæki, 100% í almannaeigu, sem hafði um það forgöngu að ganga með þessum hætti fram og veikja stoðir vinnumarkaðarins í landinu. Að það skuli með öðrum orðum vera opinbert fyrirtæki sem fagnar tilboði sem beinlínis byggir á því að ekki sé farið að hefðbundnum samskiptareglum á íslenskum vinnumarkaði og að reynt sé að fara á svig við hefðbundið verklag í öryggis- og hollustumálum.

Það er alveg ljóst að önnur tilboð sem bárust á þeim tíma hefðu valdið því að Kárahnjúkavirkjun hefði ekki verið arðbær. Það er líka alveg ljóst að Kárahnjúkavirkjun var alltaf niðurgreidd enda var ríkisábyrgð á framkvæmdinni.

Ég held að þessi harmsaga öll, sem heldur stöðugt áfram að vinda upp á sig, síðast nú nýlega með rútuslysi þar sem í ljós kom að flestir starfsmennirnir í rútunni reyndust óskráðir, hljóti að valda því að við verðum að hugsa mál sem þessi með nýjum hætti. Við verðum að vara okkur á því að halda áfram því sovéska fyrirkomulagi við raforkuframleiðslu til stóriðjuframkvæmda sem við höfum í dag. Það er algjörlega nauðsynlegt að afnema heimildir orkufyrirtækja til að nýta ríkisábyrgð til þess að afla fjár til sölu orku til stóriðju. Það er líka algerlega nauðsynlegt að þessum opinberu fyrirtækjum verði settar skýrar reglur um hvernig þau hagi sér.

Ég held að full ástæða sé til að farið verði yfir þetta mál frá grunni og menn horfi til þess að breyta umhverfinu. Fyrst ekki var hægt að treysta þessu ríkisrekna fyrirtæki til að ganga á undan með góðu fordæmi held ég að full ástæða sé til að við horfum til þess í framtíðinni að skylda Landsvirkjun einfaldlega til að tryggja að undirverktakar á hennar vegum fari að lögum og reglum í einu og öllu. Tryggja að þeir fari að vinnuverndarreglum. Tryggja að þeir fari að hollustuverndarreglum. Tryggja skattskil þeirra og ábyrgjast skattskil þeirra. Þá mundu menn kannski vinna þessa undirbúningsvinnu almennilega og þá mundu menn kannski ekki verða vitni að jafnfurðulegum fyrirbærum og hörmulegum eins og rútuslysið, núna nýlega, var eftir allt sem á undan er gengið, þar sem varla nokkur maður í rútunni var skráður.