tekjuskattur.
Frú forseti. Ég hef ekki kært eða komið á framfæri ábendingum um tiltekna einstaklinga, ég hef ekki gert það. En ég hef oftar en einu sinni og í áranna rás býsna oft bæði rætt við ríkisskattstjóra og eins skattstjóra í einstökum umdæmum um hluti sem mér eru sértækir í þeim skilningi að um var að ræða tiltekna hópa, tiltekna stétt getum við sagt, eða aðra slíka aðila þar sem blasir við mönnum verulegt ósamræmi, að því er virðist, í því sem talið er fram til tekna og hins vegar þess sem virðast vera lífskjör í viðkomandi hópum.
Ég hef líka, að minnsta kosti í tveimur tilvikum — svo ég svari hv. þingmanni heiðarlega sem tekur mig hér mjög upp — komið á framfæri upplýsingum sem ég hef haft frá fyrstu hendi úr ákveðnum rekstri um algerlega kerfislægar skekkjur þar sem menn beita veikleikum eða veilum í skattalögum og/eða bókhaldsreglum til þess að komast hjá því að greiða eðlilega skatta. Staðreyndin er nefnilega sú að á köflum hafa menn nánast staðið frammi fyrir því að um slík kerfisbundin eða kerfislæg frávik væri að ræða frá því að menn greiddu eðlilega af sköttum. Alþingi er þessi veruleiki ekki framandi því að hér hafa menn gripið til aðgerða í því skyni að fá upp á yfirborðið t.d. hluti eins og vinnu iðnaðarmanna í heimahúsum, af því að menn töldu sig nánast sannanlega standa frammi fyrir því að veruleg undanbrögð væru frá því að það væri eðlilega gefið upp. Og hvað var gert? Opnuð var leið til þess að menn fengju hluta af slíkum útgjöldum endurgreiddan, t.d. virðisaukaskatt af vinnu iðnaðarmanna inni á heimilum, ekki satt?
Auðvitað hafa menn verið að glíma við þetta og eru að glíma við þetta með ýmsum hætti skattalagamegin frá. Ég treysti opinberum eftirlitsmönnum ágætlega enda séu þeir til staðar og hafi peninga til að sinna skyldum sínum. Eitt af því sem við erum að horfast í augu við er auðvitað að skatteftirlit og skattaframkvæmd hér (Forseti hringir.) hefur verið veikburða, undirmönnuð og fjársvelt.