135. löggjafarþing — 18. fundur,  5. nóv. 2007.

tekjuskattur.

36. mál
[18:53]
Hlusta

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Við ræðum um hvort birta skuli upplýsingar úr skattskrám á hverju sumri. Í eina tíð var skatteftirlit mjög veikburða og eiginlega enginn sem sinnti því sérstaklega. Þá var notast við skatteftirlit samborgaranna. Menn áttu að fylgjast með því hvernig nágranninn bjó og hvaða tekjur hann hafði og síðan átti að tilkynna það til skattstjóra. Þetta er sem betur fer löngu liðin tíð. Það eimdi reyndar lengi eftir af þessu í Sovétríkjunum þar sem börn voru látin kæra foreldra sína og fengu heiður mikinn fyrir. Hjá Stasi náði þetta náttúrlega miklum hæðum, svona rannsóknarstarfsemi gagnvart einstaklingum.

Ég held að þetta sé löngu liðin tíð. Ég treysti fullkomlega þeim opinberu starfsmönnum sem sinna skatteftirliti til að sinna því. Enda hefur mér skilist að mjög lítið sé um kærur í kjölfar framlagningar skattskrár. Gott ef það er nokkur kæra. Birtingin er sem sagt ekki til að kæra eitt eða neitt. Ég geri ráð fyrir að þeir hv. þingmenn sem hafa lýst andstöðu við þetta frumvarp og fylgja því að skattskrár séu lagðar fram hafi ekki kært einn einasta mann. Enda er þetta ekki skatteftirlit. Þetta er ákveðin forvitni. Menn eru að svala forvitni sinni um nágrannann og kannski er það ákveðin gægjuþörf eins og hér hefur verið nefnt.

Það eru ákveðnir gallar við þetta fyrirkomulag. Í fyrsta lagi er náttúrlega upplýst um ákveðin einkamál, sem ég tel neikvætt og svo koma alls konar upplýsingar fram sem menn vilja kannski ekki að aðrir menn viti. Hér hafa verið nefnd lág laun, að börn viti um lág laun foreldra bekkjarfélaga sinna. En einnig vaknar spurningin um mann sem vinnur kannski um helgar aukalega hjá einhverjum öðrum atvinnurekanda. Hinn atvinnurekandinn fær að vita það með framlagningu skattskrár.

Svo ég tali nú ekki um upplýsingar sem börn geta fengið um tekjur og eignir foreldra sinna, sem foreldrarnir kannski ekki alltaf láta þau vita af, sérstaklega ef börnin eru uppkomin og í endalausri fjárþörf og foreldrarnir vilja verja sig. Þannig hefur maður heyrt ýmislegt sem ekki er jákvætt við framlagningu skattskrár. Auk þess tel ég framlagningu skrárinnar algjörlega óþarfa. Hún er óþarfi í dag.

Nú, vilji menn endilega birta upplýsingar um skatta sem menn greiða af því sem þeir eiga, þ.e. tekjum sínum, menn tala um skattsvik sem eru fólgin í því að menn halda eftir því sem ríkið vill fá af tekjum þeirra, þá ættu menn ekki síður að tala um bótasvik þar sem menn seilast í almenna sjóði með órétti til að ná í bætur. Mér finnst enn þá meiri ástæða til að fá upplýsingar um bætur en tekjur, miklu meiri ástæða. Þar eru menn að svíkja bætur af þjóðfélaginu — ég er að tala um þá sem ekki þurfa á bótunum að halda. Það ætti aldeilis að upplýsa um það. Ég held að nágranninn hefði meiri áhuga á því. En ég er á móti því líka.

Allt þetta geta menn fengið fram með tölfræði. Það er hægt að birta upplýsingar um tekjudreifingu. Það er hægt að birta upplýsingar um hæstu laun, lægstu laun, hversu margir borga skatta o.s.frv. Þetta á ekkert að þurfa að birta, fyrir utan það að enginn kærir. Og besti aðilinn til að sinna þessu er að sjálfsögðu hinir ágætu opinberu starfsmenn skattaeftirlitsins sem ég treysti, nákvæmlega eins og ég treysti Fjármálaeftirlitinu, eins og ég treysti Samkeppniseftirlitinu, til að sinna starfi sínu.