135. löggjafarþing — 18. fundur,  5. nóv. 2007.

tekjuskattur.

36. mál
[18:59]
Hlusta

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er stundum sagt að sannleikanum sé hver sárreiðastur. Það skyldi nú ekki vera að þessi gægjuþörf og rannsóknir á högum einstaklinga sé af nákvæmlega sömu hvötum sprottin eins og það sem áður var minnst á frá Sovét og hjá Stasi?