tekjuskattur.
Virðulegi forseti. Ég held að hv. þm. Pétur Blöndal ætti að kynna sér betur hver var grunnurinn undir upplýsingagjöf fólks í Stasi-kerfinu og í kerfinu austan járntjalds. Ég held að þá mundi hann ekki tala um það af slíkri léttúð og býst við að þekking hans sé það takmörkuð að hann átti sig ekki á hvað þar lá að baki.
Ég ítreka að það kerfi sem við búum við er mjög skynsamlegt. Ég hlýt að spyrja þingmanninn: Er hann andvígur upplýsingaskyldu í Kauphöll um kjör æðstu stjórnenda fyrirtækja? Er hann andvígur upplýsingaskyldu um kjör kjörinna fulltrúa? Ég hlýt að spyrja um það: Er maðurinn þá sem sagt að synda í straumi á móti almennri réttarþróun í opinberum rétti jafnt í Vesturheimi sem og í Evrópu?