135. löggjafarþing — 18. fundur,  5. nóv. 2007.

tekjuskattur.

36. mál
[19:02]
Hlusta

Róbert Marshall (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Um leið og ég lýsi mig andvígan því frumvarpi sem hér er til umræðu vil ég mótmæla þeirri harkalegu árás sem gerð var áðan á blaðamenn á öllum miðlum í landinu, verandi einn af þeim sem hafa haft atvinnu af því í nokkra daga á ári að birta upplýsingar sem lagðar eru fram í samræmi við lög sem gilda í landinu. (Gripið fram í.) Ég mótmæli því sjónarmiði sem fram kemur í málflutningi flutningsmanna þessa frumvarps að slíkar upplýsingar eigi að vera leyndar. Ég minni á að það liggja fyrir upplýsingar um launakjör alþingismanna, ráðherra, aðstoðarmanna ráðherra og margvíslegra embættismanna á vegum hins opinbera. Vilja hv. flutningsmenn meina að brotið sé á friðhelgi þessara einstaklinga? (Gripið fram í: Nei.)

(Forseti (RR): Ég vil minna hv. þingmenn á að andsvar á að beinast að ræðu þess sem síðast talaði en ekki ræðum fyrri flutningsmanna.)