135. löggjafarþing — 18. fundur,  5. nóv. 2007.

tekjuskattur.

36. mál
[19:06]
Hlusta

Grétar Mar Jónsson (Fl) (andsvar):

Frú forseti. Það er enginn misskilningur hjá mér. Mér finnst þetta afskaplega lágkúrulegar aðfarir. Ef einhverjir svíkja fé út úr Tryggingastofnun þá gera þeir það auðvitað á þeim forsendum að þeir eru ekki öryrkjar en þú talaðir um öryrkja og þá sem væru að svíkja út bætur.

Þetta er dálítið skondin staða hjá Sjálfstæðisflokknum í þessu máli eins og mörgum öðrum. Þeir tala um að hafa hlutina einhvers staðar falda í myrkraherbergjum eða leyfa þeim ekki að líta dagsins ljós eða menn sjái hlutina eins og þeir eru. Þeir eru í feluleik og vilja hafa flestalla hluti þannig og þegar þeir tala um Stasi þá veit ég ekki um neinn annan stjórnmálaflokk á Íslandi sem hefur stutt annað eins eftirlitskerfi og var hjá KGB í Rússlandi og Stasi í Austur-Þýskalandi eins og fiskveiðistjórnarkerfið er eða Fiskistofa sem er með eftirlit á fiskstofnunum við Ísland og fiskimönnum.