135. löggjafarþing — 19. fundur,  6. nóv. 2007.

Háskóli á Ísafirði.

30. mál
[15:00]
Hlusta

Flm. (Kristinn H. Gunnarsson) (Fl):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um háskóla á Ísafirði sem ég flyt ásamt hv. þingmönnum Guðjóni Arnari Kristjánssyni og Jóni Magnússyni.

Frumvarpið er í sex köflum, samtals 19 greinar. Í I. kafla er gerð grein fyrir hlutverki skólans. Samkvæmt 1. gr. frumvarpsins er Háskólinn á Ísafirði vísindaleg mennta- og rannsóknarstofnun sem veitir stúdentum sínum menntun til að sinna sjálfstætt vísindalegum verkefnum og til að gegna ýmsum ábyrgðarstörfum í atvinnulífinu. Háskólanum er heimilt að veita framhaldsmenntun og endurmenntun í þeim fræðum sem stunduð eru í deildum hans.

Í II. kafla frumvarpsins er fjallað um kennara og stúdenta og kveðið á um að kennarar við skólann eru prófessorar, dósentar, lektorar, aðjúnktar og stundakennarar. Þar er einnig kveðið á um að rektor ræður prófessora, dósenta, lektora, aðjúnkta og stundakennara og að skipuð er dómnefnd eftir tilnefningu háskólaráðs til að dæma um hæfi umsækjenda um störf við skólann.

Í III. kafla frumvarpsins er fjallað um stjórnskipulag hans og kveðið á um að háskólaráð er æðsti ákvörðunaraðili innan skólans nema annað sé berum orðum tekið fram í lögum og að í háskólaráði sitji rektor sem jafnframt er forseti þess, tveir fulltrúar kennara, einn fulltrúi stúdenta og einn fulltrúi skipaður af menntamálaráðherra. Þá er í þessum kafla mælt fyrir um að menntamálaráðherra skipar rektor til fimm ára samkvæmt tilnefningu háskólaráðs og að rektor er yfirmaður stjórnsýslu háskólans. Háskólaráð ákvarðar deildaskipan háskólans og afmarkar aðrar stjórnunareiningar innan hans. Fyrir hverja deild háskólans eða skilgreinda námsbraut skal setja námsskrá sem kveður á um markmið, inntak og meginviðfangsefni námsins, þar með talda starfsþjálfun á vettvangi þar sem það á við.

Í IV. kafla frumvarpsins eru ákvæði sem varða kennslu, framkvæmd prófa og agaviðurlög og eru hefðbundin miðað við ákvæði annarra háskóla á vegum ríkisins.

Í V. kafla er fjallað um rannsóknir og bókasöfn og kveðið á um að skólanum sé heimilt að starfrækja rannsóknarstofnun á eigin vegum eða í samvinnu við aðra og að eiga aðild að, með samþykki menntamálaráðherra, rannsóknar- og þróunarfyrirtækjum sem eru hlutafélög, sjálfseignastofnanir eða félög með takmarkaða ábyrgð og stunda framleiðslu og sölu í því skyni að hagnýta og þróa niðurstöður rannsókna sem háskólinn vinnur að á hverjum tíma.

Þá er kveðið á um að við skólann skuli vera rannsókna- og sérfræðibókasafn sem tengist fræðasviðum skólans og að skólanum sé heimilt að gera samstarfssamninga við aðrar stofnanir og fyrirtæki sem tengjast starfssviði háskólans, t.d. um kennslu, rannsóknir, ráðningu kennara og annarra starfsmanna. Þá er að finna í þessum kafla ákvæði sem veitir háskólaráði rétt til að veita doktorsnafnbót.

Í VI. kafla eru ákvæði um gildistöku og reglugerðir með hefðbundnum hætti. Gert er ráð fyrir því að lög þessi öðlist gildi þegar í stað og í ákvæði til bráðabirgða er menntamálaráðherra falið að skipa fimm manna háskólaráð sem tekur til starfa þegar í stað til þess að undirbúa stofnun skólans. Miðað er við að skólinn hefji kennslu eigi síðar en á haustönn 2008 og þá verði skipað nýtt háskólaráð samkvæmt ákvæðum 5. gr. frumvarpsins.

Þetta er megininntakið í þessu lagafrumvarpi, virðulegi forseti. Það er gert ráð fyrir því að skólinn verði hefðbundinn ríkisháskóli og við hann séu ekki innheimt skólagjöld með öðrum hætti en gildir um slíka skóla. Auðvitað má hugsa sér annað form í þessu, t.d. finnst mér vel koma til greina að háskólinn sé sjálfseignarstofnun, jafnvel hugsanlegt að hann sé hlutafélag. Það eru allt spurningar um form sem er engin ástæða til að útiloka að geti komið til greina ef samstarfsaðilar eru fyrir hendi sem gera það mögulegt að fara þá leið. En þetta er sú leið sem við flutningsmenn leggjum til að verði farin. Hún er á valdi ríkisins og Alþingis ef vilji er til þess að hrinda henni í framkvæmd með skjótum hætti sem full þörf er á.

Flutningsmenn telja að öll rök hnígi að því að farsælast sé að stjórna uppbyggingu á háskólanámi á Vestfjörðum með sjálfstæðri stofnun, með fjárveitingu á fjárlögum eins og aðrir háskólar búa við. Þá munu forustumenn skólans vinna að uppbyggingu hans og móta námsframboð á þeim forsendum sem gagnast best þeim sem skólanum er einkum ætlað að þjóna. Ég vek athygli á því að fyrir liggur að töluverður fjöldi nemenda er til staðar. Í dag er áætlað að 150–200 manns á Vestfjörðum stundi nám við háskóla, fyrst og fremst í fjarnámi.

Bent er á reynslu af uppbyggingu Háskólans á Akureyri. Í upphafi var lagt til að hafin yrði kennsla á háskólastigi á Akureyri í tilteknum greinum á vegum Háskóla Íslands en frá því var horfið og stofnaður sjálfstæður háskóli fyrir norðan. Eru væntanlega fáir nú í nokkrum vafa um að það hafi reynst heillaráð og háskólanám fyrir norðan væri með allt öðrum og lakara hætti nú ef það hefði verið annexía frá háskóla héðan að sunnan og uppbyggingu þess hefði verið stjórnað af fjarlægum stjórnendum í öðrum landshluta.

Miklar framfarir á síðasta áratug gera það kleift að hinn nýi háskóli getur átt samstarf við aðra háskóla og sótt til þeirra þekkingu og námsframboð. Er gert ráð fyrir að þeir möguleikar verði nýttir sem mest í þágu háskólanáms á Vestfjörðum.

Rökin fyrir sérstökum háskóla á Vestfjörðum eru enn þau sömu og sett voru fram þegar stofnað var til Háskóla á Akureyri. Birgir Ísleifur Gunnarsson, þáverandi menntamálaráðherra, mælti fyrir frumvarpi um Háskólann á Akureyri á Alþingi 12. desember 1987 og sagði þá m.a., með leyfi forseta:

„Ég gat þess áðan að háskóli á Akureyri hefur verið mikið áhugaefni forustumanna í byggðum norðan lands. Það er mjög skiljanlegt. Ég hygg reyndar að ekkert sé raunhæfara í byggðamálum en að flytja menntun út í byggðir landsins. Mér er það í minni að menntamálaráðherra Svía var hér í heimsókn á sl. sumri og við ræddum um þróun skólamála, ekki síst þróun háskólamála í Svíþjóð. Hann sagði að ríkisstjórnir í Svíþjóð hefðu gert mjög margt til að halda uppi byggðastefnu. Þær hefðu látið mikið fé af hendi rakna í ýmiss konar félagsleg verkefni og til ýmiss konar atvinnufyrirtækja, en í rauninni hefði ekki nein stefna reynst betri en sú þegar Svíar fóru að flytja sitt æðra nám út í hinar dreifðu byggðir landsins.“

Ég legg áherslu á þessi lokaorð í framsöguræðu þáverandi menntamálaráðherra, Birgis Ísleifs Gunnarssonar. Sömu sjónarmið komu síðar fram hjá Ólafi G. Einarssyni, þáverandi menntamálaráðherra, 26. febrúar 1992, þegar hann mælti fyrir frumvarpi til nýrra laga um Háskólann á Akureyri, en hann sagði þá, með leyfi forseta:

„Ég vil einnig minna á að starfsemi Háskólans á Akureyri er mikilvægur þáttur í byggðastefnu, þ.e. fólk í hinum dreifðu byggðum landsins fái aukna möguleika á að notfæra sér þá menningu og þau lífsgæði sem felast í þróttmikilli háskólamenntun og vísindastarfsemi.“

Mikill áhugi er á háskólanámi á Vestfjörðum. Milli 150 og 200 manns stunda þar nám í fjarnámi eins og fyrr kom fram. Enginn háskóli hefur starfsemi þar, aðeins háskólasetur og þegar litið er á upplýsingar á vefsíðu Háskólaseturs Vestfjarða sem út af fyrir sig er ágæt og merkileg stofnun er þar tekið fram eftirfarandi, með leyfi forseta:

„Háskólasetur Vestfjarða er tengiliður fyrir Vestfirðinga sem ætla að tengjast háskóla. Mikilvægast í þessu sambandi er að Háskólasetur Vestfjarða er þjónustustofnun fyrir fjarnemana á Vestfjörðum.“ Það er skilgreiningin á tilgangi og starfsemi háskólasetursins samkvæmt upplýsingum af vefsíðu setursins sjálfs. Þar segir líka, virðulegi forseti: „Við háskólasetrið sjálft eru því ekki kennslu- eða rannsóknarstöður.“

Þannig að þó að háskólasetur hafi verið að sumu leyti merkileg stofnun og ýtt áfram uppbyggingu á háskólanámi, þá er það ekki háskóli, getur ekki orðið það, getur ekki tekið að sér hlutverk þess vegna þess að hér er um að ræða þjónustuaðila fyrir aðra háskóla. Þess vegna þarf að stíga skrefið til fulls.

Ef aðsókn að nýjum háskóla verður svipuð og ætla má út frá þeim fjölda sem stunda fjarnám á Vestfjörðum munu nemendur við nýjan háskóla í upphafi verða margfalt fleiri en þeir sem hófu nám við Háskólann á Akureyri þegar kennsla hófst þar, en ef ég man rétt þá voru þeir innan við 40. Allar ástæður eru til að ætla að nýr háskóli á Vestfjörðum á næsta ári mundi þegar í upphafi hafa margfalt þann fjölda sem menn lögðu af stað með við stofnun Háskólans á Akureyri. Og þó að fjöldinn væri ekki mikill þar á þeim tíma þá tókst vel til og Háskólinn á Akureyri er orðinn mjög öflugur háskóli sem hefur skilað því inn í samfélagið sem honum var ætlað að gera, ekki bara þjóðfélaginu í heild sem hann að sjálfsögðu hefur lagt sitt af mörkum til að efla heldur hefur hann styrkt samfélagið sem hann starfar í.

Í því sambandi minni ég á nýlega skýrslu sem kom út á vegum OECD þar sem einmitt er bent á að eitt öflugasta tækið til þess að styrkja byggð í dreifðum byggðum einstakra landa er í gegnum menntastofnanir og sérstaklega háskóla. Það helgast af því að háskólinn er auðvitað sjálfur stofnun eða atvinnufyrirtæki sem hefur starfsfólk og nemendur og þar er starfsemi. En fyrst og fremst vegna þess að út úr háskólanum kemur fólk sem sest að á þessum stöðum í meira mæli en væri ef það hefði gengið til mennta annars staðar, tekur til starfa í sínu samfélagi og beitir sér hvert á sínum vettvangi, hvort sem það er hjá atvinnufyrirtæki, hinu opinbera, í félagasamtökum eða stjórnmálum. Það hefur þekkingu á ýmsum viðfangsefnum þjóðfélagsins sem er við að glíma. Það getur hjálpað atvinnufyrirtækjum og öðrum í samkeppni í þjóðfélaginu um fólk, tekjur, verkefni, tækifæri og annað og það leiðir til þess að svæðið eflist vegna þess að þekkingin hefur styrkst. Það eru fleiri á svæðinu með meiri þekkingu og meiri getu til þess að drífa hlutina áfram og í því felst helsti styrkurinn og ávinningurinn fyrir viðkomandi svæði. En fyrst og fremst legg ég áherslu á þann ávinning sem slíkt er fyrir þjóðfélagið í heild því að aukið menntastig þýðir aukin landsframleiðsla, auknar tekjur og meiri velsæld í viðkomandi þjóðfélagi.

Með fjölgun skóla hefur fjölgað þeim sem hafa gengið menntaveginn. Þetta er þróun sem menn sáu fyrst í framhaldsskólunum eða kannski öllu heldur fyrst í iðnskólunum sem voru víða um land og áttu sitt blómaskeið á sínum tíma. Síðan komu menntaskólarnir og það var mikil togstreita um það fyrir 30 árum eða svo að fá nægilegan pólitískan stuðning til að stofna framhaldsskóla í ýmsum byggðarlögum landsins, t.d. á Ísafirði. Að baki stofnun Menntaskólans á Ísafirði var margra ára barátta nokkurra alþingismanna á þeim tíma sem að lokum skilaði þeirri ákvörðun að skólinn var stofnaður því að þeir sem voru fyrir óttuðust að þetta hefði áhrif á hag sinna skóla. Þannig eru hlutirnir. Þess vegna var þessi togstreita.

Við sjáum að því víðar sem við förum með framhaldsskólana þá styrkjast viðkomandi byggðarlög og landsvæði, sem styrkir þjóðina í heild af því að stærri hluti af hverjum árgangi menntar sig meira en ella væri. Ýmsar breytingar sem orðið hafa gera það auðveldara að stofna framhaldsskóla með færri nemendum en fyrir 30 eða 40 árum. Þess vegna er gerlegt að stofna framhaldsskóla í Borgarnesi, á Snæfellsnesi, Ólafsfirði og víðar. Ég hygg að það sé nokkuð samdóma álit þingmanna í þeim kjördæmum þar sem skólar hafa verið settir á stofn að það hafi verið til góðs. Ég man ekki eftir dæmi um að menn haldi því fram að það hafi leitt til verri stöðu að stofna framhaldsskóla á tilteknum stað.

Sama þróun á sér stað með háskólana. Þeir eru að færast út um landið rétt eins og framhaldsskólarnir áður. Þeir munu skila jákvæðum áhrifum alveg eins og framhaldsskólarnir gerðu. Það er deginum ljósara að það er ávinningur af því fyrir þjóðina eða þjóðarbúið í heild að það er háskóli á Bifröst, á Hvanneyri, á Hólum og á Akureyri. Það er líka ávinningur fyrir viðkomandi byggðarlög eða landsvæði sem njóta í ríkari mæli en önnur góðs af þeirri starfsemi.

Þannig mun það halda áfram. Það mun koma háskóli á Suðurnesjum. Reyndar er búið að gefa því vel undir fótinn af hálfu ríkisstjórnarinnar að koma honum formlega á legg. Það mun koma háskóli á Selfossi. Ég er alveg sannfærður um það. Það mun verða háskóli á Egilsstöðum innan skamms og hér er lagt til að það verði háskóli á Ísafirði. Allt þetta mun koma, vil ég leyfa mér að spá. Allt mun þetta mun verða til góðs fyrir þjóðina og fyrir einstök svæði.

Ég flutti þingsályktunartillögu um stofnun háskóla á Ísafirði fyrir fjórum árum ásamt þremur öðrum þingmönnum, Gunnari Birgissyni, Einari Oddi Kristjánssyni og Magnúsi Stefánssyni. Þá létum við taka saman fyrir okkur upplýsingar. Þar var m.a. dregið fram, til að sýna áhrifin af skóla á tilteknu landsvæði eins og lagt er til í þessu tilviki, að 400 stúdenta skóli sem hefði þar af 300 í staðarnámi, sem kallað er, mundi leiða til fjölgunar íbúa um 900. Það munar dálítið um það. Við erum þegar með langleiðina upp í þann fjölda af nemendum á svæðinu í fjarnámi, fjórum árum síðar. Ég hugsa að við hefðum kannski ekki þorað að halda því fram þá að fjölgunin yrði svo hröð sem reyndin hefur orðið. Svo bætast við nemendur af svæðinu sem eru í staðarnámi í öðrum háskólum.

Fjórðungssamband Vestfjarða ályktaði um stofnun háskóla á Ísafirði á þingi sínu í byrjun september og hvatti til að hann yrði stofnaður og tæki til starfa á næsta ári, árið 2008, rétt eins og lagt er til í þessari tillögu okkar þriggja þingmanna. Þá hefur bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar lýst yfir stuðningi sínum við stofnun háskóla á Ísafirði. Því til viðbótar liggur fyrir stuðningur við tillöguna frá því fyrir fjórum árum frá bæjarstjórninni í Bolungarvík og ýmsum hagsmunasamtökum á svæðinu og reyndar frá Menntaskólanum á Ísafirði sem ég vil sérstaklega geta um að lýsti strax yfir stuðningi við stofnun háskóla. Fræðslumiðstöð Vestfjarða er annað dæmi um samtök sem studdi málið fyrir fjórum árum og ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að sú afstaða sé óbreytt, bæði hjá Menntaskólanum á Ísafirði og fræðslumiðstöðinni.

Hins vegar kom fram, eins og ég átti von á, í umsögnum um málið fyrir fjórum árum, andstaða annarra háskóla, svo sem Kennaraháskólans og Háskólans í Reykjavík, af þeirri einföldu ástæðu að þeir eiga hagsmuna að gæta. Þeir óttast um hagsmuni sína verði þessi skóli að veruleika og leggjast því gegn málinu. Ég tel það vera skammsýni. Ég tel að menn eigi að draga lærdóm af reynslunni á Akureyri og þessir háskólar eigi að leggjast á sveif með okkur flutningsmönnum, styðja við bakið á tillögunni og vinna að því að stofna háskóla á Ísafirði. Reyndar held ég að menn ættu að halda áfram, eins og ég nefndi áðan, t.d. á Selfossi og Egilsstöðum, en það mál bíður betri tíma og er ekki til umræðu í þessu þingmáli.

Ég held að út af fyrir sig geti verið hægt að hugsa sér ýmsar útfærslur. Eitt verður þó að liggja alveg ljóst fyrir, að þar verður að vera sjálfstæður skóli. Það verður að vera sjálfstæð stofnun og það verður að vera skóli. Annað er óásættanlegt. Það er nauðsynlegt til að þeir sem hafa forræði málsins á sinni hendi, þeir sem fara fyrir stofnuninni eða skólanum, séu fullmektugir í starfi. Annað kemur okkur ekki áfram eins og ætlast er til.

Til eru dæmi um það erlendis að margar stofnanir sameinast í háskóla. Ég varpa þeirri hugmynd fram, þótt það sé ekki tillaga okkar flutningsmanna, að auðvitað getur maður séð fyrir sér, horft til lengri tíma, að nokkrar stofnanir sem eru um landið myndi saman einn skóla þótt þær séu hver um sig sjálfstæð stofnun. Það væri ekki ósvipað form og þekkist og dæmi eru um í Englandi þar sem háskólar eru í raun safn af tiltölulega sjálfstæðum eða algjörlega sjálfstæðum einstökum skólum eða stofnunum. Ég gæti séð það fyrir mér að landsbyggðarskólarnir gætu orðið einn skóli samanlagt en hver um sig haldið sínu sjálfstæði og fjárveitingum en geti unnið saman, lagt saman krafta sína.

Ég legg þessa hugmynd inn til að undirstrika hvert markmiðið enda ljóst að leiðir að því markmiði gætu verið fleiri en ein. Við leggjum til eina ákveðna leið í þessu frumvarpi, þekkta leið sem hefur verið farin og af er góð reynsla.

En virðulegi forseti. Ég held að ég hafi ekki fleiri orð í framsögu fyrir þessu máli okkar en legg til að frumvarpinu verði vísað til 2. umr. og menntamálanefndar að lokinni 1. umr.