135. löggjafarþing — 19. fundur,  6. nóv. 2007.

Háskóli á Ísafirði.

30. mál
[16:33]
Hlusta

Illugi Gunnarsson (S):

Herra forseti. Mér þykir það frumvarp sem hér er lagt fram um margt ánægjulegt. Það snýr að miklu hagsmunamáli fyrir þær byggðir sem hér er um að ræða, Vestfirðina alla, bæði norður- og suðurfirðina, en vissulega er Ísafjörður hjarta þeirrar byggðar.

Ég held að það dyljist ekki nokkrum manni að mikið hefur gengið á í þeim byggðum á undanförnum árum og byggðirnar hafa veikst mjög. Margir hafa af því miklar og þungar áhyggjur að erfitt verði að snúa þeirri þróun við, að það sé svo langt fram gengið að það þurfi meiri háttar átak til þess að svo verði.

Ég lít svo á að frumvarpið sem hér er lagt fram sé hluti af slíkum aðgerðum. Reyndar eru uppi og í gangi núna aðgerðir einmitt til að skoða þetta. Það sem mér finnst skipta máli er að sá skilningur hefur vaxið að þegar kemur að langtímaaðgerðum í byggðamálum séu áherslurnar á menntamálin, félagslega þáttinn og samgöngumálin. Auðvitað verður aldrei nein búseta nema atvinna sé til staðar, en þar verðum við fyrst og fremst að treysta á heimamenn. Það hefur sýnt sig að tilraunir ríkisvaldsins til að taka þátt í atvinnurekstri eða styrkja hann með beinum hætti hafa oft og tíðum farið mjög illa. Það er á þeim sviðum sem ég nefndi áðan sem ríkisvaldið á hvað besta möguleika til að gera gagn og því er ég ánægður með þá tillögu sem hér er komin fram.

Þó eru atriði sem snúa að því formi sem við viljum hafa á slíkri stofnun sem ég tel að væri áhugavert að velta aðeins fyrir sér. Ég er þeirrar skoðunar að það ætti að skoða mjög vel hvort uppbyggingin verði þannig að samið verði við einhverja núverandi háskólastofnun, t.d. annaðhvort Háskóla Íslands eða Háskólann í Reykjavík svo að dæmi séu tekin, um að koma mjög náið að þessu samstarfi. Ástæðan fyrir því að ég tel að það sé betra er að þarna er um að ræða mjög lítið samfélag og til þess að búa til háskóla sem stendur undir því nafni að vera háskóli en ekki bara t.d. kennslustofnun á háskólastigi, stofnun þar sem fram fara fullburða rannsóknir sem hægt er að nota í alþjóðlegu samhengi o.s.frv. þarf töluvert öflugt samfélag í kring. Bæði þarf að vera efnahagslegur kraftur en það þarf líka auðvitað töluverðan fjölda af vísindamönnum, fræðimönnum, kennurum og nemendum. Ég velti fyrir mér hvort það væri heilladrýgra fyrir Vestfirði að fara í slíkt samstarf. Það þarf ekki að þýða að um væri að ræða einhverja stýringu frá slíkri stofnun, þ.e. að ekki væri hægt að tryggja sjálfstæði hennar, en slíkt samstarf gæti auðveldlega orðið báðum til hagsbóta, ekki bara stofnuninni sem væri vestur á fjörðum heldur líka þeirri stofnun sem ynni með þeirri stofnun, þ.e. annaðhvort Háskóla Íslands eða Háskólanum í Reykjavík í gefnu dæmi.

Ég nefni þetta m.a. vegna þess að ég teldi að möguleikar þeirra einstaklinga sem færu í slíkt nám í háskólanum á Vestfjörðum og tækju BA- eða BS-gráðu t.d. til að stunda framhaldsnám erlendis yxu við það að hafa háskólagráðu frá háskóla sem hefur þá þegar viðurkenningu í hinu alþjóðlega háskólasamstarfi. Við vitum að þegar ungt fólk velur sér háskólanám horfir það til þess hvaða gildi gráðan hefur, ekki bara í heimabyggðinni, heldur líka annars staðar, bæði hér á Íslandi og erlendis sem möguleiki upp á t.d. framhaldsnám. Ég held að við þyrftum að vanda okkur mjög vel með það. Ef við viljum virkilega að þetta skili árangri, og ég held að allir séu sammála um það, þarf að nálgast það m.a. út frá þeirri forsendu.

Hitt sem mig langar að nefna er að við vorum fyrir ekki svo mörgum dögum að fjalla um þingsályktunartillögu um hjúkrunarnám í Háskólanum á Akureyri. Þar var m.a. vitnað til rannsókna sem þýddu að nemendur sem hefðu stundað nám við Háskólann á Akureyri væru líklegri en aðrir til að setjast að úti á landi, hvort sem var á Akureyri eða annars staðar. Einn af stóru kostunum sem fylgja þessu háskólanámi, verði af því, er að það er líklegra að þeir sem þar stunda nám sitji um kyrrt og vilji áfram búa á staðnum þar sem þeir stunduðu háskólanám. Það væri heilmikill kostur.

Síðan tek ég líka undir það sem hefur komið fram að það eru heilmiklir sóknarmöguleikar fyrir Vestfirði. Ég er reyndar sannfærður um að þegar upp verður staðið, og vonandi ef menn standa af sér þennan þorskniðurskurð sem er svo þungbær fyrir svæðið og hefur verið á undanförnum árum — það er ekki fyrst núna verið að skera niður þorskveiðar, þær hafa minnkað árum saman — sjáum við ljós við enda ganganna. Það er hægt að snúa þessari þróun við en það þarf margt að koma saman, bæði aðgerðir ríkisvaldsins eins og þessi hugmynd hér snýr að og eins þurfa líka að ganga upp þær hugmyndir sem fiskifræðingarnir hafa verið með um að þorskstofninn muni vaxa ef það verður farið að ráðum þeirra. Það er mikil og þung ábyrgð sem hvílir á Hafrannsóknastofnun hvað varðar ráðgjöfina í þorskveiðinni. Við hljótum að ætlast til þess að innan örfárra ára getum við farið að veiða meiri þorsk, það skiptir máli, en á meðan verðum við að nota tímann til að styrkja innviði byggðarinnar. Við verðum að styrkja og auka þá möguleika sem ungt fólk hefur á Vestfjörðum til að láta til sín taka í sinni heimabyggð, stunda þar nám og síðan atvinnu í framhaldinu.

Hvort sem við erum að tala um möguleika í sjávarútvegi eða einhverjum öðrum greinum getum við aldrei ætlast til þess að við náum árangri þar svo lengi sem grunnurinn er að gefa sig. Það er það sem ég hef mestar áhyggjur af og þeir sem þekkja vel til vestur á fjörðum vita að maður kemst ekki hjá því að hafa verulegar áhyggjur af því að við séum komin þar svo langt niður að það verði erfitt að snúa þessu við. Það er það sem ég á við þegar ég segi að það er ljós við enda ganganna, hugmyndir líkar þessum sem snúa að innviðunum þurfa að ganga fram hérna á næstu árum til að það sé möguleiki, það er alveg lykilatriði. Þess vegna styð ég þessa hugmynd. Ég tel að hana þurfi að útfæra aðeins öðruvísi, í það minnsta ræða hana og skoða vel, en þetta er eitt af því sem skiptir máli þegar menn horfa til framtíðar á Vestfjörðum.