135. löggjafarþing — 20. fundur,  7. nóv. 2007.

veiðar í flottroll.

153. mál
[13:25]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Herdís Þórðardóttir) (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. sjávarútvegsráðherra fyrir greinargóð svör og vænti þess að tekið verði á þessum málum. Þeir sem hafa tekið á sig niðurskurðinn í þorski og verða að byggja hann upp, þennan verðmætasta nytjastofn okkar Íslendinga, eiga rétt á því að við skoðum vandlega hvaða aðrir þættir en sjálf þorskveiðin hafa áhrif á viðgang stofnsins. Útgerðir og byggðarlög sem eiga allt sitt undir þorskveiðum geta ekki borið þessar byrðar ein þegar margt bendir til þess að veiðiaðferðir á uppsjávarfiskum, þ.e. veiðar með flottroll, hafi bein áhrif á vöxt og viðgang þorskstofnsins. Þorskveiðar eru og verða áfram undirstöðugrein íslenska sjávarútvegsins. Okkur sem falin hefur verið ábyrgð í þessum efnum ber skylda til að skoða allar vísbendingar um það sem áhrif kann að hafa á viðgang þorskstofnsins. Að mínu mati þarf að leggja ríkari áherslu á rannsóknir annarra þátta en veiðiálagsins eingöngu og þess vegna fagna ég viðbrögðum ráðherra við fyrirspurn minni.