135. löggjafarþing — 20. fundur,  7. nóv. 2007.

skýrsla nefndar um flutningskostnað og jöfnun flutningskostnaðar á landsbyggðinni.

84. mál
[13:32]
Hlusta

samgönguráðherra (Kristján L. Möller) (Sf):

Hæstv. forseti. Ekki ætla ég að svara fyrir Eimskip enda hef ég ekki umboð til þess. En hv. þingmaður hefur beint til mín tveimur spurningum.

Því er til að svara að það stendur í fjárlögum ársins 2008 — hann reyndar orðaði það sjálfur eitthvað á þá leið að það stæði að vísu í fjárlögum — að veita eigi 150 millj. kr. tímabundið til jöfnunarkostnaðar við vöruflutninga. Þetta er í fyrsta sinn sem nokkur ríkisstjórn mætir þeirri þörf, að setja inn peninga vegna flutningskostnaðar á milli landshluta. Það er mikilvægt skref og ég er ákaflega stoltur af því að sitja í þeirri ríkisstjórn sem stígur það skref. Nánari útfærsla á nýtingu þessara fjármuna liggur ekki fyrir. Um er að ræða tímabundna greiðslu eins og áður sagði til verkefnisins sem tekur enda þegar samgöngubætur hafa lækkað flutningskostnað til þeirra svæða sem hvað mestan kostnað bera.

Með flýtiframkvæmdum á Vestfjörðum, vegi um Arnkötludal, þverun Mjóafjarðar og öðrum vegabótum í Djúpinu, sem allar eiga að klárast á síðari hluta næsta árs en þó eigi síðar en á árinu 2009, eru líkur til þess að flutningskostnaður á milli Ísafjarðar og Reykjavíkur, svo dæmi sé tekið, fari úr tæplega 35.000 kr. á tonn í 28.500 kr. tonnið sem er 18% lækkun. Með því mun flutningskostnaður á Vestfjörðum færast til samræmis við það sem gengur og gerist í öðrum landshlutum, að Norðausturlandi slepptu. Eins og hv. þingmaður gat um sjáum við að hæstu flutningsgjöldin eru á Egilsstaði, Seyðisfjörð, en þangað eru 650–680 kílómetrar, eða Þórshöfn, tæpir 700 kílómetrar. Þar er kostnaðurinn 7.000 kr. hærri.

Hv. þingmaður spyr einnig: „Með hvaða hætti öðrum hyggst ráðherra beita sér fyrir úrlausnum á jöfnun flutningskostnaðar á landsbyggðinni?“

Áhrifamesta leiðin til að lækka flutningskostnað er að bæta samgöngur þar með því að stytta vegalengdir eins og skýrt er stefnt að í núverandi samgönguáætlun og með þeim flýtiframkvæmdum sem fram hafa komið.

Í síðustu 12 ára samgönguáætlun var meginmarkmiðið að ferðatími landsmanna til og frá Reykjavík yrði aldrei meiri en þrjár og hálf klukkustund. Eftirfarandi flýtiframkvæmdir munu stytta ferðatíma og þar af leiðandi lækka flutningskostnað.

Það á að veita rúmlega 1.400 millj. kr. til Suðurstrandarvegar árið 2008–2010 sem þýðir að unnt verður að ljúka veginum árið 2010 í stað 2015–2018. Með 600 millj. kr. fjárveitingu í Fróðárheiði er stefnt að því að vinna við lokaáfanga geti hafist árið 2009. Flýtt verður framkvæmdum í austanverðum Þorskafirði og milli Vattarfjarðar og Vatnsfjarðar og þverun Þorskafjarðar er álitlegur og spennandi kostur sem vinna þarf að. Það fékk ég beint í æð á hinum ágæta fundi sem ég var á á Patreksfirði í síðustu viku, um þá styttingu sem þar yrði, einir 20–30 kílómetrar.

Gert er ráð fyrir að flýta framkvæmdum við göng milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar þannig að þeim megi ljúka árið 2012 í stað 2014 og um leið verði ráðist í vegabætur á Dynjandisheiði. Strandavegi milli Hólmavíkur og Drangsness verður að mestu lokið með bundnu slitlagi árið 2009. Tengingu milli Raufarhafnar og Þórshafnar um hina nýju Hófaskarðsleið yfir Melrakkasléttu verður flýtt og henni lokið árið 2010. Norðfjarðargöng verða tilbúin árin 2011–2012. Veita á alls 2,3 milljarða til þeirra framkvæmda árin 2009 og 2010 en fyrstu fjárveitingar voru ætlaðar á árunum 2011–2014. Axarvegur, þ.e. vegurinn um Öxi, er talinn hafa mikla þýðingu fyrir byggðir á sunnanverðum Austfjörðum enda styttist vegalengdin þar um 60 kílómetra með Axarvegi.

Jafnframt er unnið að undirbúningi, eins og öllum er kunnugt um, Bakkafjöruhafnar, tvöföldunar Suðurlandsvegar, Sundabrautar í Reykjavík og Vaðlaheiðarganga í Eyjafirði. Þess má líka geta að unnið er að lengingu flugbrautar á Akureyri og Bolungarvíkurgöng, sem svo skulu heita, fara í útboð núna næstu daga.

Héðinsfjarðargöngum vindur vel fram og eru framkvæmdir þar á fullum krafti. Þau verða opnuð í desember 2009. Einnig er unnið að styttingu á hringvegi um Hornafjarðarfljót, svo nokkur dæmi séu nefnd.

Ég ítreka það, virðulegi forseti, sem hér hefur komið fram, og ég vænti þess að við hv. þingmaður séum sömu skoðunar um það, að vænlegasta leiðin er bættar samgöngur og að stytting vegalengda sé áhrifaríkasta aðferðin hvað þetta varðar.

Ég ítreka jafnframt hve stoltur ég er af þeim 150 millj. kr. sem eru inni í fjárlagafrumvarpinu vegna flutningskostnaðar. Mjór er mikils vísir.