135. löggjafarþing — 20. fundur,  7. nóv. 2007.

skýrsla nefndar um flutningskostnað og jöfnun flutningskostnaðar á landsbyggðinni.

84. mál
[13:40]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Það er fullt tilefni til þess að taka undir orð hæstv. samgönguráðherra í þá veru að verulegar vegabætur og stytting vegalengda hér á landi munu lagfæra verulega stöðu landsbyggðarinnar að því er flutninga varðar í framtíðinni.

Hins vegar verður að líta svo á að þær 150 millj. kr. sem nú eru settar í þetta verkefni, að greiða niður flutningskostnað, eru eingöngu tímabundin framkvæmd eins og þær eru settar fram. Þær eru bundnar við ákveðið ástand vega sem ég veit að hæstv. samgönguráðherra hefur kynnst ákaflega vel á ferðum sínum. Það er náttúrlega sérstakt fyrir Vestfirði. Það breytir hins vegar ekki því að finna þarf framtíðarfyrirkomulag varðandi niðurgreiðslu flutningskostnaðar.