135. löggjafarþing — 22. fundur, 12. nóv. 2007.
varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá Árna Þór Sigurðssyni um að hann sé á förum til útlanda í opinberum erindum og geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Varamaður hans, Paul Nikolov, tekur sæti hans í dag. Kjörbréf Pauls Nikolovs hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni samkvæmt 2. gr. þingskapa.
[Paul Nikolov, 9. þm. Reykv. n., undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.]