135. löggjafarþing — 22. fundur,  12. nóv. 2007.

málefni aldraðra.

143. mál
[17:02]
Hlusta

heilbrigðisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999.

Í frumvarpinu er lagt til að gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra verði hækkað um 12,5%, eða úr 6.314 kr. í 7.103 kr. Hækkunin er vegna verðlagsbreytinga en byggingarvísitalan hækkaði um 12,5% á tímabilinu desember 2005 til desember 2006.

Framkvæmdasjóður aldraðra fær tekjur af sérstöku gjaldi sem skattstjórar leggja á þá sem skattskyldir eru samkvæmt lögum um tekjuskatt og eignarskatt. Úr sjóðnum eru m.a. veittir styrkir til byggingar öldrunarstofnana. Samstarfsnefnd um málefni aldraðra á að stjórna sjóðnum og gera árlega tillögur til heilbrigðis- og tryggingaráðherra um úthlutun úr honum.

Virðulegi forseti. Ég tel brýnt að þetta frumvarp hljóti afgreiðslu á haustþingi þannig að það fylgi fjárlagafrumvarpi. Ég leyfi mér að leggja til að frumvarpinu verði vísað til heilbrigðisnefndar og til 2. umr.