málefni aldraðra.
Hæstv. forseti. Það er bundið í lög að ákveða þennan nefskatt á ári hverju, að hann hækki ekki sjálfkrafa heldur komi fram tillaga og frumvarp á hverju ári þar sem Alþingi samþykki breytingar á nefskattinum. Ég er sammála því að hækka nefskattinn sem þessu nemur um 789 kr. á hvern gjaldanda og gjaldið verði kr. 7.103 kr. á hvern gjaldanda á árinu 2008.
Hæstv. forseti. Ég vildi eingöngu nefna að það er ánægjulegt að nú skuli sjóðurinn eingöngu notaður til framkvæmda, þ.e. til bygginga og breytinga á hjúkrunarheimilum í stað þess sem áður var, frá því að vera hreinn framkvæmdasjóður. Frá því að hann var stofnaður var því miður smám saman farið að seilast í þennan sjóð. Fyrir þremur árum eða svo var helmingi sjóðsins varið til styrktar á rekstri hjúkrunarheimila. Það var mjög bág staða og við finnum enn fyrir því að uppbygging hjúkrunarheimila hefur ekki verið eins og þurft hefur á að halda. Það sýna biðlistar og erfiðleikar á mörgum stöðum við að fá pláss fyrir aldraða á hjúkrunarheimilum. Takmörkun sjóðsins við framkvæmdir er í sjálfu sér mjög góð og mjög þörf eins og ástandið er í dag.
Ég vil, hæstv. forseti, benda á að á mörgum stöðum er viðhald fasteigna orðið mjög bágborið og brýnt að fara í viðhald og meiri háttar viðgerðir. Framkvæmdasjóðurinn er hins vegar ekki ætlaður til viðhaldsframkvæmda, gera við þök, lagnir og annað sem þarf að gera á eldri byggingum. Ég tel brýnt að gera úttekt á því hvað það mundi kosta fyrir ríkissjóð að mæta þörfinni fyrir viðhald á hjúkrunarheimilum.
Í framhaldinu er rétt að minnast á að þetta þyrfti auðvitað að gera hjá öllum opinberum byggingum. Þær eru margar hverjar að grotna niður.