uppkaup á jörðum og verndun landbúnaðarlands.
Herra forseti. Í upphafi árs 2007 gerði Gallup viðhorfskönnun meðal almennings um íslenskan landbúnað. Tæp 80% telja að það skipti miklu máli að Íslendingar séu ekki öðrum háðir um landbúnaðarafurðir. 94% svarenda telja að það skipti miklu máli að öflugur landbúnaður verði stundaður hér á landi til framtíðar.
Hluti af þeirri sátt sem ríkt hefur um landbúnað á Íslandi í seinni tíð á rætur í þeirri sýn að sjálfseignarbændur séu eins konar vörslumenn landsins sem nytji það til framleiðslu á hollum matvælum, jarðnæði á Íslandi sé í dreifðri eign og víðast hvar hefur sambúð landeigenda og þeirra sem vilja ferðast um landið, skoða það og njóta útivistar verið góð. Uppkaup fjársterkra aðila á jörðum vítt og breitt um landið stefna þessari stöðu og þessari sátt í voða.
Í nýrri skýrslu Bændasamtakanna kemur fram að þeim sem eiga þrjú lögbýli eða fleiri hefur fjölgað á árunum 2000–2005 úr 221 í 280, þ.e. um 27%. Á árunum 2000–2005 skiptu nærri 6% jarða um eigendur en á árinu 2006 varð sprenging því að þá skiptu alls um 8% allra jarða í landinu um eigendur og 9% jarða sem voru í ábúð. Hér eru ótaldar þær landspildur sem skipt er út úr lögbýlum, svo sem til frístundanota eða sumarbústaða. Vegna þess að í mörgum tilvikum hefur verið stofnað hlutafélag um hverja jörð er erfitt að meta heildareignasöfnunina en talið er að einn og sami eigandi að flestum eignum eigi um eða yfir 100 jarðeignir. Til dæmis á sami aðili 10 jarðir í Vopnafirði en býr ekki á neinni þeirra og sami aðili kaupir einnig upp jarðir meðfram ám í Borgarfirði. Ég spyr: Er þetta þróunin sem við viljum?
Hlutirnir gerast hratt. Árið 2000 átti ríkið 605 jarðir, 405 í ábúð og 200 eyðijarðir. Aðeins sex árum seinna hefur ríkið selt margar og á aðeins 470 jarðir, þar af 302 í ábúð og 169 eyðijarðir þannig að ríkið hefur líka blandað sér í þennan dans. Sumar jarðir geta svo sem hafa verið seldar ábúendum og verið áfram í byggð en um hitt eru líka dæmi að jarðir hafi fallið úr ábúð.
Í Bændablaðinu 11. janúar 2005 lýsir Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur Bændasamtakanna, því kerfi sem er í Danmörku sem er í Evrópusambandinu. Þar segir: „Margvíslegar kröfur eru gerðar til þeirra sem kaupa bújarðir og mikil áhersla er lögð á ábúðarskyldu jarðareiganda“ og það að „landbúnaðarland sé nýtt til búskapar“. Eitt af markmiðum laganna í Danmörku er einmitt að auka samkeppnishæfi landbúnaðarins. Eftirfarandi kröfur eru gerðar til þeirra sem kaupa bújörð á frjálsum markaði í Danmörku:
Að hafa náð 18 ára aldri, hefja búsetu á jörðinni innan sex mánaða frá kaupum, búa að lágmarki í átta ár áður en hægt er að leigja hana öðrum, ef viðkomandi á fleiri en eina jörð þurfa þær allar að liggja innan 10 kílómetra loftlínu frá íbúðarhúsi á þeirri jörð þar sem hann býr og samanlögð stærð þeirra má ekki fara yfir ákveðin mörk.
Hér á landi eru engar slíkar takmarkanir. Hliðstæðar takmarkanir og í Danmörku eru í Noregi og reyndar í fleiri nágrannalöndum.
Verð á landbúnaðarvörum fer hækkandi í heiminum og sjónum er beint að varðveislu og endurheimt landa til að tryggja grundvöll landbúnaðarframleiðslu. Mjög ströng ákvæði gilda almennt í nágrannalöndum okkar, eins og ég hef lýst, með verslun og meðferð á landi. Ekki er aðeins lögð áhersla á byggð og búsetu, heldur einnig á sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar. Ég leyfi mér því, herra forseti, að beina þeim spurningum til hæstv. landbúnaðarráðherra hvort hann hyggist beita sér fyrir endurskoðun ábúðar- og jarðalaga sem tryggi betur nýliðun og stöðu sjálfseignarbóndans í íslenskum landbúnaði, tryggi öryggi þar með í gæðum og framleiðslu landbúnaðarvara og verndun landbúnaðarlands og tryggi jafnframt dreift eignarhald á landi. Ég spyr hvort ráðherra vilji beita sér fyrir því að setja hliðstæð lög (Forseti hringir.) og gilda í nágrannalöndum okkar til að tryggja að hið sama megi verða hér.