uppkaup á jörðum og verndun landbúnaðarlands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. frummælanda fyrir að taka þetta mál til umræðu og tek undir þau orð að full ástæða sé til að ræða jafnumfangsmiklar breytingar á íslensku samfélagi og breytingarnar bæði á verði á jarðnæði út um landið og í söluviðskiptum með það.
Ég held að það sé hárrétt sem fram kemur hjá hæstv. landbúnaðarráðherra að þessar breytingar eru að mestu leyti til góðs. Þær verða með öðru til þess að verð á jarðnæði hefur hækkað umtalsvert og hefur gefið mörgum bóndanum kost á því að ljúka ævistarfi sínu eða innheimta úr æviverki sínu tekjur af sölu á því sem hann hefur starfað við alla sína tíð. Því ólíkt því sem gerðist þegar veiðileyfin á hafinu fóru að ganga kaupum og sölum þá er hér að mestu um sjálfseignarbændur að ræða og það eru þeir sem eru að njóta þessarar þróunar í miklum mæli.
Við hljótum þess vegna að fara ákaflega varlega í því að setja einhverjar takmarkanir á það með hvaða hætti sjálfseignarbændur fara með jarðnæði sitt eða selja það því að slíkar takmarkanir leiða alltaf og óhjákvæmilega til þess að draga úr verðmæti landsins. Við getum samt ekki útilokað það að einhverjar reglur gætu verið til bóta til að styrkja not lands til landbúnaðar og það hljótum við fyrst og fremst að gera í gegnum skipulag sveitarfélaganna. Það má líka gera, eins og víða er gert um lönd, með því að fara með öðrum hætti skattalega með jarðnæði sem notað er til landbúnaðar og síðan þyrftum við auðvitað að hafa áhyggjur af því ef einn aðili væri að sölsa undir sig gríðarlega mikið land hér á landi. Ekki viljum við til að mynda að hálft landið sé í eigu eins og sama aðilans. Ég hygg að það sýni sig að hér hefur (Forseti hringir.) engin slík þróun orðið og ekkert það óheillaástand sem kallar á aðgerðir núna en sjálfsagt er að hafa málið áfram til umræðu og athugunar eins og fram kom áðan.