135. löggjafarþing — 24. fundur,  14. nóv. 2007.

fjöldi landvarða og vinnutímabil þeirra.

101. mál
[14:13]
Hlusta

umhverfisráðherra (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Forseti. Það er auðvitað alveg rétt sem hér er bent á að mikilvægi landvarðanna hefur vaxið og fer vaxandi. Það er einmitt þetta tvíþætta eðli starfsins, ef þannig má að orði komast, að vera úti á landi yfir sumartímann og sinna svo fræðslunni í meira mæli á veturna. Ég hygg að það sé alveg hægt að flétta þetta saman.

Ég átti þess kost um daginn að sitja stofnfund Samtaka um náttúru- og útiskóla sem hefur þá skemmtilegu skammstöfum Snú. Þar er kominn saman mjög áhugasamur hópur kennara af öllum skólastigum og eins og við vitum hefur það oft verið þannig að margir hafa tvinnað þessi störf saman jafnvel þó að auðvitað sé það kannski ekki hægt með góðu móti lengur þó að það hafi verið hægt í gamla daga. En fræðsluhlutverkið verður alltaf mikilvægara og mikilvægara svo ekki sé talað um í því samhengi að hér fjölgar sífellt ferðamönnum, erlendum ferðamönnum og líka það að Íslendingar eru mjög duglegir við að ferðast um eigið land. Það er mjög vel. En því miður er það sums staðar þannig að það skortir á góða umgengni og það þarf að vera stöðugt á þeirri vakt, bæði á þessari umgengnisvakt og líka bara á náttúruverndarvaktinni svo ekki sé talað um að hafa augun hjá sér ef um utanvegaakstur eða annað slíkt er að ræða.

Ég vil líka bara upplýsa hér í lokin að af 97 friðlýstum svæðum hér á landi er landvarsla á einungis 13 þannig að það er auðvitað mikið verk að vinna í þessum efnum og það er gott að heyra að hér er stuðningur þeirra sem til máls hafa tekið við þetta mikilvæga starf og við það að efla náttúruverndina í gegnum landvörsluna og friðlýsingarnar.