135. löggjafarþing — 24. fundur,  14. nóv. 2007.

kortlagning vega og slóða á hálendinu.

121. mál
[14:19]
Hlusta

umhverfisráðherra (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Siv Friðleifsdóttur fyrir fyrirspurnina. Hún er eins og heyra má nokkuð vel inni í þessum málum, en eins og fram hefur komið hafa Landmælingar Íslands unnið að því í samvinnu við Vegagerð ríkisins í þó nokkur ár að kortleggja vegarslóða í landinu. Þetta er auðvitað gríðarlega stórt verkefni en vinnunni hefur miðað nokkuð vel áfram. Í upphafi þessa árs höfðu um 22 þúsund kílómetrar verið mældir og settir inn á landupplýsingakerfi stofnunarinnar og ég hygg að núna í nóvembermánuði séu kílómetrarnir orðnir 25 þúsund, ég vona að ég fari rétt með það.

Landmælingar Íslands gerðu fyrr á þessu ári samning við Ferðaklúbbinn 4x4 um að GPS-mæla fleiri slóða og fá aðgang að gögnum sem félagar ferðaklúbbsins höfðu aflað í gegnum tíðina. Þar með bættust við 4 þúsund kílómetrar í þennan gagnagrunn. Nú er svo komið að vegarslóðar á hálendinu og Suðvesturlandi hafa nánast allir verið kortlagðir. Aðrir hlutar landsins eru langt komnir og talið er að enn eigi eftir að kortleggja einhver þúsund kílómetra til viðbótar.

Eins og fram hefur komið er kortlagning forsenda þess að hægt verði með markvissum hætti að taka á því alvarlega vandamáli sem utanvegaakstur er. Þeir slóðar sem nú hafa verið kortlagðir verða flokkaðir og skilgreindir og ákvörðun tekin um hverjum á að loka fyrir umferð og hverjir geta verið opnir tímabundið eða eftir atvikum eins og færð um þá leyfir. Þessi vinna þarf að fara fram í samráði við heimamenn með hliðsjón af landnýtingu svæðisins, náttúruvernd og útivist. Miðhálendið er það svæði sem við viljum einbeita okkur að og ljúka fyrst vinnu við. Það þarf að gefa út kort og fræða almenning um hvaða vegir séu opnir og hverjir ekki og merkja þá skilmerkilega. Fulltrúar ráðuneytisins munu funda með hlutaðeigandi sveitarfélögum á næstunni og gert er ráð fyrir að sú yfirferð sem nú er fyrirhuguð nái til markalínu miðhálendisins en aðrir landshlutar fylgi svo í kjölfarið. Með þessu móti og hugsanlega með lagabreytingum er vonast til að hægt verði að draga úr lagalegri óvissu um það hvað teljist utanvegaakstur og loka slóðum sem eru taldir óþarfir þannig að þeir hverfi smám saman. Tilgangurinn er sem sagt að fækka slóðum og styrkja úrræði gegn utanvegaakstri.

Hins vegar er rétt að árétta að allur akstur utan vega er bannaður samkvæmt lögum. Á því leikur ekki vafi. Óvissan er hins vegar um það hvað sé vegur og hvað sé ekki vegur, hvað sé slóði og hvað sé ekki slóði. Akstur manna á slóðum utan almennra vega er á þeirra eigin ábyrgð. Slóðar geta orðið til vegna utanvegaaksturs eins farartækis og þótt ekki sé til heildstætt kort yfir flokkaða vegi enn þá þýðir það ekki að heimilt sé að aka eftir slóðum eða hjólförum utan skilgreindra vega þar til kortlagningunni er lokið. Hugsanleg lokun slóða í framtíðinni með merkingum þýðir heldur ekki að aðrir ómerktir slóðar séu leyfilegir til aksturs. Tilgangur vinnunnar fram undan er að eyða vafa um hvar sé heimilt að aka og hvar vegir í náttúru landsins liggja og að vafaatriðin verði túlkuð náttúrunni í hag.

Utanvegaakstur getur skilið eftir sig langvarandi lýti, ekki síst á viðkvæmum svæðum á hálendinu, og eyða þarf allri óvissu í þeim efnum og að því búnu að taka með viðeigandi hætti á þeim brotum sem utanvegaaksturinn er. Einnig má nefna í þessu sambandi að skoði maður töflur yfir fjölda ökutækja hér á landi, og þá er ég að tala um ökutæki af öllum stærðum og gerðum, allt frá litlum léttum torfæruhjólum og upp í risastóra jeppa, þá hefur ökutækjum á Íslandi fjölgað gífurlega á undanförnum áratug. Það er m.a. við þann vanda að etja að um leið og við getum glaðst yfir því að fleiri hafi aðgang og geti ferðast um landið þýðir það líka að tækin, að vélarnar í þessum tækjum eru svo sterkar og kraftmiklar að menn komast kannski á slóðir sem var mjög vandasamt að komast á fyrir 15, 20, 30 árum. Við eigum líka við þennan vanda að etja, en ég hygg að á næstu tveimur árum held ég að væri raunsætt að segja, ættum við að geta lokið þessari vinnu.