nettæling.
Virðulegur forseti. Það er alveg ljóst að í löggjöf okkar er hægt að dæma fyrir tilraunir til brots. Það var m.a. að hluta til dæmt á þeim grundvelli fyrir skömmu síðan er karlmaður var dæmdur fyrir að tæla unga stúlku til kynlífsathafna. Í Noregi er löggjöfin mjög skýr. Eins og hér hefur komið fram er þar hægt að dæma fyrir að koma á fundi við barn.
Ég fagna því sem hæstv. dómsmálaráðherra segir hér. Ég skil hæstv. ráðherra þannig að hann opni á að ef dómur fellur þannig í því máli sem komið hefur verið inn á hér, á þann hátt að þessir menn sleppi, þá þurfi að fara yfir löggjöfina. Ég vil túlka hæstv. ráðherra sem svo að hann sé að opna málið.
Ég vil gjarnan spyrja hæstv. ráðherra hvort hann telji, miðað við löggjöfina í Noregi, að ef sama mál hefði átt sér stað í Noregi þá hefði dómur fallið öðruvísi þar.