135. löggjafarþing — 24. fundur,  14. nóv. 2007.

nettæling.

171. mál
[14:48]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Ágúst Ólafur Ágústsson) (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svörin. Mér finnst jákvætt að hann sé tilbúinn að bregðast við. Hann segist vilja bíða eftir niðurstöðu Hæstaréttar en eins og ég benti á, burt séð frá niðurstöðu Hæstaréttar, þá liggur fyrir niðurstaða héraðsdóms sem sýnir að hugsanlega er einhver vafi á því hvenær tilraun með svokallaðri nettælingu telst refsiverð og hvenær ekki.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra beinnar spurningar í framhaldinu, þ.e. hvort hann sé ekki tilbúinn að fara engu að síður, burt séð frá niðurstöðu Hæstaréttar, þá leið sem aðrar þjóðir hafa gert, að gera ráð fyrir að nettæling barna í kynferðislegum tilgangi sé refsiverð í sjálfu sér. Þá þurfum við ekki að vera háð mati dómstólanna á tilraunaákvæði, sem getur að sjálfsögðu verið alltaf matskennt.

Mig langar einnig að benda á að við höfum tekið mörg jákvæð skref í þessum málaflokki undanfarin ár og ég vil sérstaklega draga fram að nú eru alvarleg kynferðisafbrot gegn börnum ófyrnanleg. Ég held að Ísland sé nánast eina landið í heiminum sem hefur það þannig. Við höfum sömuleiðis hækkað lágmarksrefsingu fyrir kynferðisafbrot gegn börnum. Það er búið að hækka kynferðislegan lögaldur þannig að það er ýmislegt jákvætt hefur gerst í þessum málaflokki. En við sjáum að hætturnar leynast víða og fjölmargir barnaníðingar reyna að nálgast börnin á netinu í kynferðislegum tilgangi. Ég tel að sé einhver vafi hvort núverandi lagaákvæði nái utan um slíkt athæfi beri okkur að bregðast við því.

Mér finnst fullkomlega réttlætanlegt og rökrétt að nettæling gagnvart börnum í kynferðislegum tilgangi verði gerð refsiverð í sjálfu sér. Ef við gerum það ekki, gerum það alveg skýrt, þá erum við í raun að bregðast börnum þessa lands.