Urriðafossvirkjun.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðfríði Lilju Grétarsdóttur fyrir að taka þetta mál upp. Það er sannarlega ekki vanþörf á að ræða þau ótíðindi sem bárust að austan í gærkvöldi. Það er skaði að engir af ráðherrum hæstv. ríkisstjórnar skuli sjá sér fært að vera hér við en það bíður þá betri tíma að eiga orðastað við þá um þessa hluti.
Þær aðstæður sem eru uppi í þessu máli eru óþolandi og ólíðandi. Landsvirkjun, studd af ríkisstjórn sem fer með eignarhaldið fyrir hönd þjóðarinnar, beitir aflsmun og mikilli hörku, beitir sveitarfélög og einstaka landeigendur þrýstingi og fer fram með ofríki. Það blasir við. Það er ekki að tala niður til sveitarstjórnarmanna að rekja það sem er staðreynd, að Landsvirkjun mætti á staðinn degi eftir að sveitarstjórn hafnaði virkjunaráformunum með seðlabúntið í annarri hendinni og byssuna í hinni. Þannig er unnið og það eru staðreyndir.
Það er augljóst eins og hér kom fram áðan að vatnsréttindi Títan-félagsins sem ríkið afhenti einhliða og í heimildarleysi — hvergi er stoð í lögunum fyrir því að afsala ríkinu þessum verðmætum til Landsvirkjunar — heimila ekki þessar framkvæmdir. Það eru fjölmargir meinbugir á málinu og það sem mestu skiptir þó er að það er engin ástæða til að ráðast í þessar virkjanir, það er engin þjóðhagsleg nauðsyn sem knýr á um það.
Það er auðvelt að leysa úr málum ef þetta snýst um útvegun á hóflegu magni af orku með öðrum og miklu óumdeildari aðferðum en hér á að fara fram með. Ég skora á þá sem áður hafa haft uppi stór orð um að koma í veg fyrir þessi áform að standa nú í lappirnar. Nú þarf að fara að taka til hendi, það þarf að taka í taumana. Það er algerlega ástæðulaust að láta Landsvirkjun halda þessum undirbúningi áfram, sérstaklega með þeim vinnubrögðum sem hún hefur ástundað (Forseti hringir.) og þetta á ósköp einfaldlega að stöðva. Til þess duga einföld fyrirmæli frá ríkisstjórn til fyrirtækisins sem er í 100% opinberri eigu.