135. löggjafarþing — 26. fundur,  15. nóv. 2007.

almannatryggingar o.fl.

195. mál
[18:10]
Hlusta

Lúðvík Bergvinsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mér þótti athyglisvert í ræðu hv. þingmanns að mér virðist ekki vera mikill munur á stefnu ríkisstjórnarinnar og stefnu Vinstri grænna. Þess vegna kemur mér kannski á óvart hve hv. þingmenn Vinstri grænna hafa verið ákveðnir í gagnrýni sinni í flestum málum þegar í ljós kemur þegar reynt er að kafa dýpra og kalla eftir hugmyndafræðinni að sáralítill meiningarmunur er á stefnu ríkisstjórnarinnar eins og hún birtist og því sem hér kom fram hjá hv. þingmanni. Hún tekur undir mikilvægi forvarna eins og ríkisstjórnin stefnir að. Hún telur að heilbrigðismál eigi að vera undir yfirstjórn ríkisins sem vitaskuld verður engin breyting á. Ég fæ því ekki séð, virðulegi forseti, að sá mikli meiningarmunur sem hv. þingmenn Vinstri grænna láta stundum í veðri vaka sé til staðar. Ég verð að segja eins og er að ég fagna því að enn frekari stuðningur er við stefnu ríkisstjórnarinnar í röðum stjórnarandstæðinga en ég átti von á. Ég lýsi yfir mikilli ánægju með þessa ræðu hv. þingmanns.