135. löggjafarþing — 26. fundur,  15. nóv. 2007.

almannatryggingar o.fl.

195. mál
[18:11]
Hlusta

Árni Páll Árnason (Sf):

Virðulegi forseti. Ég kvaddi mér hljóðs aðallega til að eiga orðastað við hv. þm. Steingrím J. Sigfússon sem vék hálfandstyggilegum orðum að Samfylkingunni áðan í andsvari við hæstv. heilbrigðisráðherra og því var ekki auðveldlega við komið að svara þeim sendingum þá. Síðan hefur hv. þm. Þuríður Backman talað af hálfu Vinstri grænna og því verð ég að beina máli mínu til hennar þótt ræða hennar sé öll önnur og áferðarfegurri en það sem kom frá hv. flokksformanni hennar fyrr í dag. Á okkur dundu hin hefðbundnu svikabrigsl í garð Samfylkingarinnar, að nú hefði hún brugðist hugsjónum sínum, og sannaðist þar enn og aftur að Vinstri hreyfingin – grænt framboð virðist líta á sig fyrst og fremst sem íhaldsflokk. Hún kallar sig reyndar róttækan flokk en róttæknin felst mest í því að reyna að breyta hlutum sem aldrei verður breytt og flokksmenn sjálfir vita að verður ekki breytt. Þannig talar flokksformaðurinn fjálglega um að leggja niður kapítalismann og svo vilja menn leggja niður hernaðarhyggjuna og aðra slíka hluti sem okkur dauðlegum mönnum finnst nú varla áhlaupsverk að breyta.

Þegar kemur hins vegar að einhverju sem hægt er að breyta, hvort sem það er í stóru eða litlu, og snýr að hagsmunum venjulegs fólks, skilar Vinstri hreyfingin – grænt framboð alltaf auðu. Það má alveg reikna með því og stilla klukkuna eftir því að fulltrúar Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs birtast til að tala gegn félagslegum umbótum og tala gegn raunverulegum umbótum ef þær fela í sér breytingar á óbreyttu ástandi.

Það er hins vegar rétt, hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni og öðrum þingmönnum Vinstri grænna til hugarhægðar, að minna á að Samfylkingin er ekki íhaldsflokkur og var ekki kosin til að verja óbreytt ástand. Samfylkingin sótti umboð sitt til kjósenda til að ná fram miklum umbótum í velferðarmálum, jafnt heilbrigðismálum og tryggingamálum, og það er alveg ljóst að frumvarpið sem hér er til umræðu er eitt af fyrstu skrefunum í þeirri vegferð. Ég fagna því mjög og ég held að það verði til mikilla úrbóta í tryggingamálum að flytja þann málaflokk yfir til félagsmálaráðuneytisins.

Það sem síðan er gert ráð fyrir í frekari breytingum á heilbrigðisþjónustu og uppbyggingu hennar og fjármögnun heilbrigðisþjónustunnar er algerlega nauðsynlegt til að hafa einhverja sýn yfir þann kostnað sem í kerfinu liggur. Ég efast ekki um góðan vilja heilbrigðisstarfsfólks til að fara vel með og sýna ráðdeild en það er nauðsynlegt að jafnt sá sem verkin vinnur og yfirmenn alla leið upp úr viti hver kostnaðurinn er af hverri aðgerð og hverri meðferð. Þess vegna er DRG-kerfið nauðsynlegt og það mun hjálpa til að reka heilbrigðisstofnanir með skilvirkum hætti. Það eina sem stendur til að gera af hendi hæstv. ríkisstjórnar og kveðið er á um í stjórnarsáttmála er að koma á DRG-kerfi í heilbrigðisþjónustunni í heild og beina fjárveitingum til heilbrigðisþjónustu í samræmi við raunkostnað á þeim grunni. Með öðrum orðum, það er ekki stærri vá sem steðjar að en sú að stefnt er að því að menn viti hvert peningarnir fara, viti fyrir hvað verið er að greiða og að það sé algerlega fullkomið gagnsæi í því efni.

Hv. þingmenn Vinstri grænna hafa komið með hina hefðbundnu grýluræðu sína um einkarekstur. Í dag er vitlausasta kerfi í einkarekstri sem hægt er að hugsa sér af öllum vitleysum í heilbrigðiskerfinu. Í dag eru allir sérfræðingar með samninga við hið opinbera en þeir vinna allir fyrir sama taxta. Það er engin verðsamkeppni. Með öðrum orðum, menn nýta sér markaðinn án þess að nýta stærsta kostinn við markaðinn sem er verðsamkeppni. Þar af leiðandi er eðlilegt að þróa sænska kerfið, hvorki meira né minna. Það er ekki stærri vá sem steðjar að en að koma á sænska kerfinu, sem eins og hæstv. heilbrigðisráðherra rakti áðan var komið á af sænskum jafnaðarmönnum með dyggum stuðningi systurflokks Vinstri grænna í Svíþjóð. Kemur þá enn og aftur að því að Vinstri grænir skera sig nokkuð úr í flokkaflóru Vesturlanda á þann veg að þeir eru meiri varðstöðumenn óbreytts ástands en vinstri flokkar annars staðar í Evrópu. Það merkilega er að vinstri flokkarnir yst til vinstri á Norðurlöndunum hafa treyst sér til að vinna að félagslegum umbótum og samfélagslegum breytingum með jafnaðarmönnum sem Vinstri grænir eiga ákaflega erfitt með.

Þetta sænska kerfi gerir í stuttu máli sagt ekkert annað en að þegar við vitum að DRG-greining á tiltekinni aðgerð hljóðar upp á 100 kr. þá er hægt að óska eftir því að kannað verði hvort einhver annar geti gert hana fyrir lægri upphæð. Þar með er tryggt að ríkið verði ekki fyrir óþarfa kostnaði því að vitað er hvað það kostar ríkið að framkvæma viðkomandi aðgerð. Verið er að bjóða möguleika á að hin ægilegu gróðaöfl sem Vinstri grænir tala um daginn út og daginn inn, geri hlutina ódýrari en gert er hjá ríkinu. Má ég þá spyrja út frá almannahagsmunum, út frá hagsmunum þess fólks sem bíður á biðlistunum: Hvar er hið mikla tjón? Hvar er hinn mikli skaði? Í hverju felast þær hörmungar sem Vinstri grænir segja að verið sé að innleiða í heilbrigðiskerfinu í landinu?

Virðulegi forseti. Hv. þm. Þuríður Backman gerði sérstaklega að umtalsefni 18. gr. frumvarpsins og hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon líka, og að hægt væri að ná sátt um tilflutninginn sem slíkan ef ekki væri veitt lagaheimild fyrir undirbúningi innkaupastofnunar sem þróa þarf til að sinna kaupum á heilbrigðisþjónustu. Það er algerlega ljóst að setja þarf þá stofnun á fót og það er óábyrgt í meira lagi og mér nokkurt undrunarefni að Vinstri grænir skuli mæla því bót að farið verði af stað með uppbyggingu slíkrar stofnunar án þess að lagaheimild sé fyrir hendi. Ef ég man rétt höfðu hv. þingmenn Steingrímur J. Sigfússon og Jón Bjarnason um það mörg orð í sumar hvernig opinberu fé væri ráðstafað án lagaheimilda. Mæla Vinstri grænir því bót að byggð verði upp stofnun, sem greinilega á að taka það hlutverk að sjá um kaup á heilbrigðisþjónustu, án nokkurra lagaheimilda?

Virðulegi forseti. Ég ítreka að með þessu máli er stigið mjög jákvætt skref í að byggja upp skilvirka og öfluga almannaþjónustu í landinu. Það er mjög mikilvægt að tryggingamálin flytjist yfir til félagsmálaráðuneytisins. Þar skapast forsendur fyrir áframhaldandi uppbyggingu og eflingu á úrræðum og þá er ég sérstaklega með í huga búsetuúrræði fyrir aldraða. Samhliða er svo gríðarlega mikilvægt að koma á aga í innkaupakerfi í heilbrigðisþjónustu. Á undanförnum árum höfum við séð skelfileg dæmi þess hvernig fer þegar hið opinbera kaupir þjónustu án skilgreindra verklagsreglna og án skilgreindrar aðferðafræði. Það er mjög mikilvægt, sérstaklega í tilviki almannaþjónustu, að öll slík þjónusta sé vel skilgreind fyrir fram og að byggður sé upp agaður kaupendakúltúr og þannig verði tryggt að þjónustan sé vel af hendi leyst og almenningur fái það sem almenningi ber.