íslenska ákvæðið í Kyoto-bókuninni.
Virðulegi forseti. Það eru sem sagt ekki neinir tæknilegir annmarkar á því að ná fram ákvæðinu. Það er ágætt að vita það þannig að það er þá bara pólitíkin sem sker úr um það hvort menn vilja reyna að viðhalda ákvæðinu eða ekki. Ég fagna því að hæstv. ráðherra er sammála því að við höfum sérstöðu, en hæstv. ráðherra taldi að þetta íslenska ákvæði yrði hlegið út af samningsborðinu á sínum tíma og studdi það aldrei. Núna ber hæstv. iðnaðarráðherra ábyrgð. Núna getur hann ekki verið ábyrgðarlaus lengur í þessu máli.
Ég spyr aftur, virðulegur forseti: Er ekki einmitt sá tími núna sem við eigum að nota í að ræða hvort við ætlum að berjast áfram fyrir þessu ákvæði eða ekki? Hvenær er tíminn annars?
Er hæstv. ráðherra sammála hæstv. umhverfisráðherra að við eigum ekkert að ræða þetta? Það sé engin forsenda til þess. Hvers lags staða er þetta? Ég held að við verðum að fara að ræða þetta. Iðnaðarráðherra ber það mikla ábyrgð að hann hlýtur að vilja ná niðurstöðu sem fyrst í þessu (Forseti hringir.) máli.