135. löggjafarþing — 27. fundur,  19. nóv. 2007.

olíugjald og kílómetragjald.

231. mál
[16:13]
Hlusta

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Skattlagning á eldsneyti er tiltölulega há á Íslandi. Það hefur yfirleitt verið þannig að Ísland hefur verið í svona fyrsta til þriðja sæti hvað varðar útsöluverð á bensíni og olíu. Ætli Noregur hafi ekki stundum skotist upp fyrir okkur og kannski eitt, tvö lönd önnur. Ég þekki ekki nákvæmlega hvernig það er annars staðar en ég eiginlega gef mér að það hafi verið farin svipuð leið í nálægum löndum og við höfum gert, að vera ekki með hlutfallslega álagningu, skatta af þessu tagi, ofan á hið geysilega snöggt hækkandi eldneytisverð í heiminum því þá held ég að bensínlítrinn væri nú orðinn ansi dýr víða. Menn hafa talið að við þessar aðstæður væri kannski ekki mögulegt að hleypa þessu að fullu út í verðlagið með einhverri hlutfallslegri álagningu skatta. Þetta er nú bara veruleikinn eins og hann er. Ég er enginn talsmaður þess að fara að niðurgreiða þetta sem slíkt eða lækka þetta eitthvað sérstaklega enda gengi það gegn auðvitað skynsamlegri hugsun í þessum efnum. Ég er þvert á móti að reyna að tala fyrir hinu gagnstæða, herra forseti. En það kemst bara alls ekki til skila til hv. þm. Péturs Blöndals.

Ég er mjög eindreginn stuðningsmaður þess að menn beiti skattalegum stýritækjum til þess að stuðla að umhverfisvænni þróun í samgöngum. Ég og minn flokkur erum til dæmis leggja til frekari skattalækkanir til almenningssamgangna hér í frumvarpi. Ég hef talað fyrir því að við gerðum betur en við höfum gert í að gera umhverfisvæna bíla hagkvæma í innkaupum. Þeir eiga í raun að mínu mati að vera bara því sem næst nánast skattfrjálsir meðan við erum að stuðla að aukinni notkun þeirra.

Vandinn við dísilvélarnar er sá að þeir bílar eru heldur dýrari í innkaupi svona að breyttu breytanda eins og ég var að reyna að segja hér áðan. Til þess að stuðla engu að síður að aukinni notkun þeirra þá ræddu menn um það á sínum tíma að tryggja að það yrði viss verðmunur á milli bensíns og dísils í (Forseti hringir.) útsölu. Um það er ég að ræða hér og vil tryggja að verði áfram. En þetta frumvarp gengur ekki nógu langt í þeim efnum. Nú veit ég ekki hvort þetta dugar til (Forseti hringir.) að leiðrétta þennan kúrs sem hv. þingmaður tók varðandi mína (Gripið fram í.) afstöðu í þessum málum en ég verð þá bara að biðja um orðið ef ekki vill betur til.