135. löggjafarþing — 28. fundur,  20. nóv. 2007.

ummæli þingmanns um EES-samninginn.

[13:54]
Hlusta

umhverfisráðherra (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Frú forseti. Vakna þú, mín Þyrnirós, syngur hv. þm. Valgerður Sverrisdóttir. Það er svolítið skemmtilegt að hlýða á málflutning hennar. Hann einkennist af mikilli þrá eftir því sem var en jafnframt kannski ekki mjög raunhæfum hugmyndum um það sem er, og horfi ég þá stíft á hv. þm. Guðna Ágústsson.

Það væri ágætt ef framsóknarmenn gerðu nú hreint fyrir sínum dyrum og hefðu á hreinu hvað þeim finnst í Evrópumálum. Það höfum við í Samfylkingunni og berum engan kinnroða fyrir.

Það hefur hins vegar komið skýrt fram í þessari umræðu að um það er mikil eindrægni meðal hv. þingmanna að vinna betur að samstarfinu við Evrópusambandið og innan EES-samningsins. Það er mikil eindrægni í hv. utanríkismálanefnd að koma fyrr inn í ferlið, að fá upplýsingarnar fyrr þannig að þingmenn séu betur upplýstir og stjórnkerfið sé betur viðbúið þeim breytingum sem þarf að gera. Við erum öll sammála um það og það er að sjálfsögðu mjög gott. Að auki eru allir sammála um að nota eigi betur þau tækifæri sem felast í EES-samningnum [Hlátur í þingsal.] og það er gott.

Að síðustu vil ég minna hv. þingmenn á að hæstv. utanríkisráðherra boðaði að í upphafi nýs árs yrði sérstök umræða og skýrsla um Evrópumálin. Ég hlakka mikið til þeirrar umræðu því að þessi upptaktur er svo sannarlega upptaktsins virði.