135. löggjafarþing — 28. fundur,  20. nóv. 2007.

hækkun vaxta á íbúðalánum.

[14:19]
Hlusta

Birkir Jón Jónsson (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þá umræðu sem hér hefur farið fram. Ég bað um umræðu utan dagskrár um stöðu ungs fólks sérstaklega á húsnæðismarkaðnum sem er mjög mikilvægt að stjórnmálamenn horfi til. Það hefur aldrei verið eins erfitt fyrir ungt fólk að kaupa sér húsnæði eða leigja húsnæði og nú. Þetta er staðreynd sem við viðurkennum öll og þess vegna er mikilvægt að stjórnvöld bregðist við og boði úrbætur í þeim efnum. Það er nefnilega ekki nóg að tala, hæstv. forseti.

Fyrir þremur árum boðuðu frjálshyggjumenn, hægri menn, að nú væri ekki lengur þörf fyrir Íbúðalánasjóð, bankarnir væru komnir inn á markaðinn, þeir hefðu leyst sjóðinn af hólmi og við þyrftum ekki opinbert apparat eins og Íbúðalánasjóð til að sinna svo sjálfsögðum hlut að lána fólki fyrir húsnæði. Þá voru vextirnir 4,15% hjá bönkunum. Í dag eru þeir um 6,5% hið minnsta. Þeir hafa sem sagt hækkað um 50% á þremur árum.

Sem betur fer heyrum við minna þá umræðu í dag að ekki sé þörf fyrir sterkan Íbúðalánasjóð. En hvað gerir hæstv. félagsmálaráðherra? Hvert var eitt af fyrstu verkefnum félagsmálaráðherra eftir að hún tók sæti í ríkisstjórn? Það var að sverfa að Íbúðalánasjóði, lækka lánshlutfall hans úr 90 í 80%. Ég spyr, hæstv. forseti: Er sú aðgerð til þess fallin að auðvelda ungu fólki að kaupa eigið húsnæði? Nei, því miður. Núverandi ríkisstjórn þarf að átta sig á að starfsemi Íbúðalánasjóðs er mjög mikilvæg í þessu samhengi.

Ég er sammála hæstv. ráðherra í því að það þarf samvinnu við sveitarfélögin hvað þessi mál áhrærir. Lóðabrask, uppboð á lóðum á höfuðborgarsvæðinu hefur margfaldað verð á lóðum svo milljörðum skiptir sem hefur skilað sér inn í húsnæðiskerfið. Hér þarf því samhent átak stjórnvalda, sveitarfélaga og fleiri aðila til að koma þessum málum í lag því að stór hluti ungs fólks getur ekki því miður ekki keypt eða leigt sér húsnæði.