hækkun vaxta á íbúðalánum.
Virðulegi forseti. Mér finnst á málflutningi hv. framsóknarmanna sem hér hafa talað að þeir séu búnir að steingleyma því að þeir höfðu húsnæðismálin á sinni könnu síðustu 12 ár og skildu húsnæðiskerfið eftir í algerri upplausn, skildu það eftir í algeru þroti. Það er ekki nóg með að húsnæðisverð hafi hækkað upp úr öllu valdi, um 140% frá árinu 2000, (Gripið fram í.) heldur er stoðkerfi húsnæðismála líka skilið eftir í upplausn og þá á ég við vaxtabótakerfið og húsnæðiskerfið vegna þess að vaxtagjöld heimilanna jukust um 125% að raungildi frá 1994–2005 en vaxtabæturnar hækkuðu aðeins um 4%. Sama má segja um húsaleigubótakerfið að grunnbætur húsaleigubóta hafa ekki … (Gripið fram í.) Ekki vera órólegur, fyrrverandi hæstv. ráðherra, fjárhæð húsaleigubóta hefur staðið í stað frá árinu 2000 en neysluvísitalan hefur hækkað um 48%.
Hv. þm. Birkir Jón Jónsson talaði um lækkun á lánshlutfalli og gagnrýnir mig fyrir það. (Gripið fram í.) Ég vil minna hv. þingmann á að ég hef haft ágætislærimeistara í því efni vegna þess að ekki er langt síðan Framsóknarflokkurinn stóð sjálfur að því að lækka lánshlutfallið úr 90% í 80% og lækkaði líka hámarksfjárhæðina. Ég verð að segja þegar verið er að gagnrýna mig, sem hef aðeins verið sex mánuði í ráðherrastól, fyrir að hafa sofið þyrnirósarsvefni að þá er ekki úr háum söðli að detta fyrir hv. þm. Guðna Ágústsson.
Ég tek undir að standa þarf vörð um Íbúðalánasjóð en ég vil minna hv. þingmenn Framsóknarflokksins á að þegar þeir fóru frá lá fyrir frumvarp frá þeim sem aldrei var lagt fram um breytingar á Íbúðalánasjóði og hvað vildu þeir á Alþingi þá? Þeir vildu breyta starfsemi Íbúðalánasjóðs. Það getur vel verið að ég dusti rykið af því frumvarpi og skoði það ef nauðsyn krefur vegna ESA. Ef niðurstaða ESA verður með þeim hætti getur vel verið að ég þurfi að dusta rykið af frumvarpi framsóknarmanna sem þeir skildu eftir.