135. löggjafarþing — 28. fundur,  20. nóv. 2007.

fjáraukalög 2007.

103. mál
[17:44]
Hlusta

Guðbjartur Hannesson (Sf):

Hæstv. forseti. Hér liggja fyrir tillögur varðandi fjáraukalög fyrir árið 2007. Í upphafi ætla ég að taka fram að ég styð þessar tillögur sem hér hafa verið lagðar fram sem einn af þeim sem hafa unnið að þeim í fjárlaganefnd en var svo óheppinn að vera ekki á lokafundinum og hvers undirskrift var þar af leiðandi ekki með í álitinu.

Þetta eru allsérstök fjáraukalög að því leyti að við fáum inn í þau tekjuaukningu upp á rúma 8 milljarða og erum með útgjaldaaukningu upp á um 5 milljarða þannig að það hafa orðið verulegar tilfærslur á fjármagni og miklar breytingar í meðförum fjárlaganefndar, bæði sem sagt að fengnum tillögum frá ráðherrum og ríkisstjórn en einnig í meðförum fjárlaganefndarinnar.

Þessi fjáraukalög endurspegla auðvitað að hluta að með þeim er verið að viðurkenna hallarekstur og vanáætlun sem hefur verið á fjárlögum síðastliðinna ára. Það endurspeglast sérstaklega í tveimur málaflokkum, þ.e. í heilbrigðismálum og menntamálum og það hvílir á okkur sú skylda að í framhaldinu verði reynt að kostnaðarmeta betur eða reikna betur þá fjárþörf sem er til staðar til þess að áætlunin verði vandaðri og við sitjum ekki uppi með sömu stöðu að ári eða tveimur árum liðnum.

Það er mikilvægt fyrir nýja ríkisstjórn að hreinsa til á borðinu og akkúrat núna vegna þess að það er svigrúm til þess að reyna að koma til móts við þá málaflokka sem hafa verið reknir með halla vitandi það líka að sá hallarekstur felst ekki eingöngu og alls ekki í slökum rekstri einstakra stofnana heldur hafa kröfur samfélagsins verið miklar og lagaákvæði og annað hafa sett fólk í þá stöðu að það verður að uppfylla þessi lagaákvæði. Þetta hefur leitt til kostnaðaraukningar og þetta gildir einmitt sérstaklega fyrir heilbrigðismálin og menntamálin.

Við höfum fylgst með því í menntamálum að aukin aðsókn er að skólum og það kostar meira og stundum svíður það einmitt að menn hafa ekki haft möguleika á því að stunda nám í sínum heimabyggðum. Skólar hafa verið aðþrengdir vegna fjárlaga og það er að koma í bakið á okkur í nokkrum tilfellum og það er leiðrétt að hluta til hér.

Það verður verkefni okkar í framhaldinu einmitt að kostnaðargreina með viðkomandi ráðuneytum rekstur þessara stofnana og reyna að meta betur hver raunveruleg fjárþörf er og í framhaldi af því að gera þá klárari kröfur um að menn standi við þessar fjárlagaheimildir því að þegar svona framkvæmd er eins og núna, að við hreinsum af stofnunum, þá er þetta afleit aðferð í sambandi við fjárlagaferli, þ.e. að þær stofnanir sem hafa farið hvað mest fram úr og sumar hugsanlega gert út á það njóta þá þess að fá aukafjárveitingar á sama tíma og aðrar sem hafa beitt þeirri stjórnunaraðferð að skera miskunnarlaust niður og verða við því að halda sig innan fjárlaga fá enga umbun eða koma ekki upp á borðið í svona hreinsun.

Þetta gildir auðvitað ekki um margar stofnanir. Þetta gildir um einstaka stofnanir úti á landi sem við höfum fylgst með og þetta gildir í málefnum til dæmis eins og málefnum fatlaðra þar sem við sjáum að menn hafa verið mjög nákvæmir á því að fylgja fjárlögum. Einmitt í málum eins og til dæmis málefnum fatlaðra þar sem lögin gera gríðarlega mikla kröfu á ríkisvaldið en við stöndum ekki undir þeim kröfum að öllu leyti. Þá er svolítið hart að við skulum ekki geta bætt í þann pott þannig að við gætum aukið þjónustuna og fylgt því betur eftir að þjónustan sé jöfn um allt landið og fólk njóti jafnræðis á milli landshluta.

Það er kannski eitt sem við sjáum í þessum fjáraukalögum, að við höfum verið að skoða einstaka stofnanir, en það eru einmitt settir inn safnliðir bæði í heilbrigðismálum og menntamálum til þess að geta komið til móts við einstakar smærri stofnanir á landinu úti í hinum dreifðu byggðum, stofnanir sem í sjálfu sér eru ekki með mikinn halla margar hverjar. En hallinn er jafnsár ef menn þurfa að gera hann upp á fjárlagaárinu á eftir. Það vinnst vonandi tími til þess núna á milli 2. og 3. umr. að búa til þann lista með hvaða hætti við nýtum 250 millj. kr. fjárveitingu til hjúkrunarheimila og heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni og sama gildir um menntastofnanir þar sem um er að ræða púllíu upp á 150 millj. kr.

Að hluta til gildir þetta líka um löggæsluna. Það skiptir mjög miklu máli að henni sé sinnt jafnt um landið allt og að við sjáum til þess að sýslumannsembætti fái nauðsynlegar fjárveitingar til þess að reka sómasamlega starfsemi. En þar hefur hlutunum auðvitað verið misskipt oft og tíðum.

Ég hef nú stundum sagt að við aðkomu bæði að fjárlögunum og fjáraukalögunum tekur það svolítinn tíma að setja verulegan svip á þessi fjárlög út frá stefnumálum ríkisstjórnarinnar. Það skiptir mjög miklu máli að samræmi sé á milli ákvarðanatöku í fjárlögum og fjáraukalögum og þeirrar stefnu sem ríkisstjórnin hefur sett sér. Það er í anda stefnu okkar að koma heilbrigðismálunum í heimsklassa og vera með öfluga menntun, auka menntun í landinu og vera með menntakerfið í fremstu röð. Þess sér auðvitað stað í fjáraukalagafrumvarpinu.

En ég fer ekkert dult með það að við þurfum að sjá auknar áherslur til að koma til móts við þau svæði sem hafa farið hvað verst út úr þenslunni á undanförnum árum, þ.e. Norðvesturland og Vestfirði og raunar einstaka staði annars staðar eins og Vestmannaeyjar og suðausturhornið og jafnvel norðausturhornið. Þess hefði mátt sjá betur stað í þessum fjáraukalögum að við værum að rétta þau upp. Vonandi tekst okkur að gera það með þessum safnliðum sem koma hér inn og auðvitað reynum við að fylgja því eftir að þeir dreifist inn á þau svæði þar sem við þurfum mest á því að halda.

Auðvitað er það þannig þegar farið er svona yfir sviðið og hreinsað af stofnunum að þá verður þess að gæta að þó að menn fái aukafjárveitingar núna þá er ekki verið að tala um að við ætlum að hækka fjárlögin endilega um allar þessar upphæðir á næsta ári. Eins og ég sagði áðan þá skiptir mjög miklu máli að við reynum að fara í gegnum gott kostnaðarmat, reynum að meta fjárþörfina út frá þeim kröfum sem gerðar eru til stofnana. Það eru komnir lagarammar um hvaða þjónusta eigi að vera í boði og hún þarf að vera rétt kostnaðarmetin og af sanngirni þannig að menn geti sinnt þessu hlutverki almennilega.

Áherslur ríkisstjórnarinnar eru í rauninni klárar. Þær eru byggðamál. Þær eru til að styrkja grunnþjónustuna í landinu, þ.e. á landsbyggðinni, með samgöngum, með menntamálum, með góðri heilsugæslu, með eflingu á fjarskiptum og ferðamálum. Það er verkefni okkar að fylgja því eftir í gegnum fjárlögin og að hluta til í fjáraukalögum.

Auðvitað verður að horfa til þess að fjáraukalög eiga og eru fyrst og fremst viðurkenning á þeirri stöðu sem er á þessu ári og á þeim tíma sem liðinn er. Hér er ekki verið að gera ráð fyrir fjárveitingum til þess að búa vel í haginn að öðru leyti fyrir komandi ár heldur fyrst og fremst verið að taka inn þær skuldir sem eru á viðkomandi stofnunum og þau mál sem hafa farið fram úr á undanförnum árum.

Ég ætla svo sem ekki að rekja einstaka liði í fjáraukalagafrumvarpinu. En því ber auðvitað að fagna, eins og ég sagði áðan, að verulegar upphæðir eru í heilbrigðismálin og í framhaldsskólana. Ég nefndi áðan líka málefni fatlaðra. Þar þurfum við að vera vel á vaktinni í framhaldinu. Við fáum þarna inn 100 millj. kr. til þess að rétta af málefni fatlaðra bæði í Reykjavík og á Reykjanesi og styrkjum Framkvæmdasjóð fatlaðra sem skiptir mjög miklu máli. Það er eitt af stóru verkefnunum sem bíða og við verðum að fylgja því vel eftir, þ.e. að bæta úr búsetumálum fatlaðra almennt. Það er verið að gera mjög stórt átak þar varðandi geðfatlaða og það átak þarf að ná til annarra hópa ekki síður þannig að vonandi tekst okkur að fylgja því eftir með fjárlögum.

Annað hefur komið fram í umræðunni líka og um það er sérstakt minnihlutaálit, þ.e. Grímseyjarferjumálið sem ég ætla nú bara að segja um að er vandræðamál í stjórnsýslunni. Ég ætla ekkert að gera neitt lítið úr því. Aftur á móti skil ég ekki af hverju þinginu er ekki heimilt að nota þetta með þessum hætti, þ.e. að bókfæra þetta, sem sagt færa til fjárveitingar þegar um er að ræða þá þingsamþykkt fyrir því. Þarna er loksins verið að taka töluna endanlega inn í þingið, inn í fjáraukalög og inn í lög þannig að við sem sagt tökum upp á borðið þann kostnað sem þarna er. Þetta er gamalt mál og hefði átt fyrir löngu að vera komið inn í fjárlög en ekki er seinna vænna en að taka það þá inn í fjáraukalögin. Ég get ekki séð að það þurfi að hafa neina athugasemd um að það sé gert með þeim hætti sem hér er gert.

Það gildir líka að hluta til að hér kemur inn frá minni hlutanum ósk um að heimildarákvæði um að selja 20% af Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar verði tekið út. Ég hefði svo sem í sjálfu sér getað stutt þá tillögu en sé enga ástæðu til þess. Þetta er búið að vera lengi og ég veit ekki að það standi til að selja. Ég vil þá gjarnan skoða það betur hvort ástæða sé til að taka þetta út eða hvort sveitarfélögin séu tilbúin að kaupa þennan hlut, þau sem eiga 80% í Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. Alla vega þykist ég hafa fyrir því tryggingu að það standi ekki til að bjóða þennan hlut með sama hætti og gert var í Hitaveitu Suðurnesja þannig að ég sé ekki að þetta sé neitt stórmál sem þarf að hafa sérálit um í fjáraukalögum.

Eitt af þeim verkefnum sem taka við hjá okkur í fjárlaganefndinni og skipta mjög miklu máli í framhaldinu er rammafjárlög. Um það eru gefin fyrirheit í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar að við förum í vinnu við að áætla til lengri tíma. Það tengist þessari umræðu sem ég var með áðan, að við þurfum að reyna að kostnaðarmeta rekstur stofnana og málaflokka og setja okkur markmið varðandi útgjöldin til lengri tíma. Það verður vonandi tækifæri til þess í framhaldinu og þar skiptir mjög miklu máli að Alþingi komi að, þingmenn og fjárlaganefnd og hefji þá vinnu strax í framhaldi af afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2008.

Það hefur í rauninni verið markmið sem við höfum sett okkur í fjárlaganefndinni og hefur komið fram fyrr í umræðunni að tryggja að þingið hafi sína stöðu, gegni því hlutverki sem því er ætlað, að vera fjárveitingavaldið. Það er það sem setur rammann, veitir fjárheimildirnar í fjárlögum og þess vegna þarf að styrkja stöðu þingsins. Samhliða höfum við rætt það — það er einnig inni í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og mér finnst það vera mikilvægt ákvæði — að styrkja stöðu stjórnarandstöðunnar.

Ég hef litið þannig á að þegar við erum að vinna í Alþingi — ég hef stundum furðað mig á því hvernig menn vinna þar þennan stutta tíma sem ég hef verið hér — að allir þingmenn sem hér eru komnir eigi að leggja á vogarskálarnar að ná því besta út úr því sem hér er lagt fram. Stundum finnst mér að menn bíði bara eftir því hvað kemur frá ríkisstjórninni eða frá stjórnarmeirihlutanum og sitja svo um að finna veikleikana í því í staðinn fyrir að leggja eitthvað gott til málanna í vinnsluferlinu.

Þetta gildir nú svo sem ekki í fjárlaganefndinni. Þar hafa menn reynt að standa saman að því að koma með góðar tillögur þó að hlutirnir gerist býsna hratt á lokasprettinum. En stundum hefur mér fundist, og ég hef séð það í nefndum, að menn taka varla þátt í umræðunni, koma ekki með neinar tillögur og koma svo með þriggja eða fjögurra blaðsíðna sérálit þar sem margt af því sem þar er hefði gjarnan mátt koma inn í vinnuna og koma fram sem hugmynd að því að betrumbæta hlutina í vinnsluferlinu í staðinn fyrir að vera að reyna að skapa sér einhverja pólitíska stöðu með því að hanka hvern annan.

Þetta er bara sagt til þess að halda því til haga að ég hef verið að vekja athygli á þessu bæði við einstaka þingmenn og svo hefur þetta verið eitt af því sem hefur komið mér á óvart í vinnunni því sjálfur lít ég þannig á að við séum að vinna í liðsheild til þess að gera betur þó einhvers staðar verði ágreiningur og menn geti þá haft sérálit um það sem þeir fá ekki fram.

Ég ætla ekkert að hafa miklu lengri ræðu um þessi fjáraukalög. Ég vona að þau hljóti framgang og jafnvel væri hugsanlega hægt þegar við fáum núna sundurliðun á hallarekstri á heilbrigðisstofnunum og hjúkrunarheimilum að sjá framúraksturinn líka betur og sundurgreiningu á skuldum eins og lögreglu- eða sýslumannsembætta og eins í málaflokknum málefni fatlaðra, að við getum tekið á því á milli umræðna eins og ákveðið er og bind vonir við að menn nái að rétta upp einstaka stofnanir.

Eitt stórt mál sem hér hefur verið nefnt og skiptir mjög miklu í fjárlagagerð er málefni sveitarfélaganna og staða þeirra. Það er eins með þau. Það hafa verið vangaveltur um það og er í samkomulagi frá því í mars síðastliðnum að það eigi að taka á skuldum sveitarfélaga og að ríkið komi með einhverjum hætti að því. Ég held að það sé alla veganna mjög mikilvægt að ríkisstjórnin fari yfir stöðu sveitarfélaganna og að við tökum okkur alvarlega í því að styrkja stöðu sveitarfélaganna þó ég telji að það verði best gert með því að færa fleiri verkefni til sveitarfélaga. Þar er verið að vinna að undirbúningi að færslu á málefnum fatlaðra og málefnum aldraðra.

Það er svolítið athyglisvert ef við skoðum sérstaklega fjárlögin, og raunar getum við skoðað það líka í fjárhagsstöðunni á árinu 2007, að þau sveitarfélög sem þegar hafa gert samning og yfirtekið í raun málefni eins og málefni fatlaðra, staðir eins og á Norðurlandi vestra, á Akureyri og víðar, eru með býsna betri fjárveitingar en hin svæðin þar sem er enn þá ríkisrekin svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra. Það segir okkur að með því að fara í betri vinnu þar sem greining á sér stað á þörfinni og þar sem farið er betur ofan í hvernig menn vilja haga þjónustunni að þá fylgja fjárveitingar í kjölfarið. Eitt af stóru verkefnunum líka er að samræma þjónustu einmitt á milli sveitarfélaga og ríkis, efla þjónustuna og reyna að koma þjónustunni þannig fyrir að hún verði einfaldari að því er lýtur að einstaklingunum í samfélaginu, að íbúum þessa lands þannig að þeir geti haft aðgang að góðri þjónustu og það sé ekki endalaust verið að togast á um hvort það sé ríkið eða sveitarfélögin sem veita þjónustuna því það skiptir íbúana ekki mestu máli heldur hvaða þjónustu þeir fá og hvernig hún snýr við þeim.

Ég held að ég láti þetta duga í umræðunni um fjáraukalögin og ítreka það að ég stend að því nefndaráliti sem hér er lagt fram þó nafn mitt sé ekki á listanum sem helgast af því að ég var í Skagafirði þegar málið var afgreitt frá nefnd. Ég treysti á að ég fái að vera með í framhaldinu og vera með á næsta nefndaráliti fjárlaganefndar.