fjáraukalög 2007.
Hæstv. forseti. Ljóst er að fjáraukalög þessa árs eru ekki afgreidd með öðrum hætti en verið hefur. En af því að oft er vísað til laga um fjárreiður ríkisins varðandi afgreiðslu fjárlaga og ákveðnar stofnanir, að mönnum beri að halda sig innan fjárlaga sem er auðvitað alveg rétt, þá benti ég á að við afgreiðum fjáraukalög ekki í samræmi við lög um fjárreiður ríkisins.
Þarna hefur skapast hefð. Ég tel að þessa hefð sé hægt að brjóta upp og afgreiða fjáraukalagafrumvarp eins og lög segja til um með því að afgreiðsla á fjárlögum hvers árs verði markvissari en hún er í dag. Þá þarf að líta til rekstraráætlana stofnana og fara yfir þann grunn sem viðkomandi málaflokkar byggja á, svo sem módelið sem framhaldsskólarnir vinna eftir, í daggjaldagreiðslur til dvalar- og hjúkrunarheimila og í rekstur og fjárlög hverrar heilbrigðisstofnunar, að við viðurkennum að grunnurinn sé nokkurn veginn réttur. Síðan verður að horfa til þess hvort viðkomandi stofnun er ætlað að bæta við sig aukaþjónustu og hvort gert sé ráð fyrir breytingum í rekstraráætlun viðkomandi stofnana. Þar lít ég sérstaklega til Landspítalans sem er með umfangsmikinn rekstur og allt sem stofnunin (Forseti hringir.) sýslar með, lyf og annað, er drjúgt í buddunni.